Erlent

Fréttir í flokknum Erlent frá öllum miðlum safnsins.

Fréttatónn

Nýjast

Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði
Vísir·

Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði

Rússar vörpuðu sprengjum á skóla í sunnanverðri Úkraínu í dag, þar sem íbúar bæjar nærri víglínunni höfðu komið saman til að fá mataraðstoð. Í heildina vörpuðu Rússar tíu stórum sprengjum á skólann í nokkrum bylgjum. Að minnsta kosti 26 eru látnir og minnst tuttugu er saknað.

Erlent
Tölvuþrjótar gerðu netárásir á kæli- og frystiskápa verslana í sjö löndum
RÚV·

Tölvuþrjótar gerðu netárásir á kæli- og frystiskápa verslana í sjö löndum

Matvöruverslanir í sjö löndum í Evrópu urðu fyrir netárásum sem höfðu áhrif á kæli- og frystiskápa í dag. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum. Um 40 verslanir Delhaize stórmarkaðskeðjunnar í Belgíu og Lúxemborg urðu fyrir árásum sem og verslanir í Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Hollandi og Írlandi. Fyrirtækið Sabcobel, sem rekur kælikerfi Delhaize-verslananna, segir að stillt hafi verið á afþ

Erlent
Demókratar með forskot í lykilríkjum einum degi fyrir kosningar
RÚV·

Demókratar með forskot í lykilríkjum einum degi fyrir kosningar

Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á morgun. Öll sætin í fulltrúadeildinni eru undir og um þriðjungur í öldungadeildinni. Samkvæmt nýjustu könnunum eru Demókratar með forskot á Repúblikana í nær öllum sjö ríkjunum sem ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild þingsins. Hin margumtalaða bláa alda virðist vera innan seilingar fyrir demókrata en er hægt að taka mark á skoðanakönnunum

Erlent
Bankaeigandi handtekinn grunaður um að hafa tekið 430 milljónir dala úr hirslum
Mannlíf·

Bankaeigandi handtekinn grunaður um að hafa tekið 430 milljónir dala úr hirslum

Eigandi serbneska bankans Alta Bank var handtekinn á mánudag, grunaður um að hafa tekið hundruð milljóna evra með ólögmætum hætti úr hirslum bankans. Leyfi bankans hafði áður verið afturkallað vegna ótta um fjárhagsstöðu hans og mögulegt fall. Davor Macura, eigandi Alta Bank, er grunaður um að hafa tekið um 45 milljarða serbneskra dínara úr hirslum bankans og þannig aflað sér...

Erlent
Netárásir á matvöruverslanir víða um Evrópu
RÚV·

Netárásir á matvöruverslanir víða um Evrópu

Netárás var gerð á tugi matvöruverslana og verslun IKEA í Belgíu í dag. Hitastig kæli- og frystiskápa var hækkað upp úr öllu valdi. Svipaðar árásir voru gerðar í Svíþjóð, Eistlandi og Lúxemborg. Í síðasta mánuði urðu þrjár franskar stórmarkaðskeðjur fyrir netárás með svipuðum hætti. Matvöruverslanir og IKEA urðu fyrir netárásum Stórmarkaðskeðjan Carrefour í Belgíu segir netárásina hafa truflað sta

Erlent
Bankaði upp á hjá mömmu eftir 28 ár
mbl.is·

Bankaði upp á hjá mömmu eftir 28 ár

Bretinn Karl Bushby er kominn heim til Hull eftir 28 ára fjarveru og 50.000 kílómetra gönguferð frá Chile sem hófst 1. nóvember 1998. Meðal tilhlökkunarefna hans í förinni var að gæða sér aftur á djúpsteiktum fiski og frönskum kartöflum að hætti Breta.

Erlent
Fjölskylda Henry Nowak segir lögregluna hafa villt um fyrir sér og ítrekað breytt frásögninni
Nútíminn·

Fjölskylda Henry Nowak segir lögregluna hafa villt um fyrir sér og ítrekað breytt frásögninni

Fjölskylda Henry Nowak lýsir nú í fyrsta sinn nóttinni þegar henni var tilkynnt um morðið á honum og áfallinu sem fylgdi því að sjá upptöku úr búkmyndavél lögreglunnar. Í viðtali við ITV segir fjölskyldan að hún hafi þurft að horfast í augu við tvö áföll: fyrst dauða Henrys og síðan að sjá hvernig lögreglumenn komu […] Greinin Fjölskylda Henry Nowak segir lögregluna hafa villt um fyrir sér og ítre

Erlent
Allt frosið og möguleikinn á aukakosningum eykst
RÚV·

Allt frosið og möguleikinn á aukakosningum eykst

Sjö vikur eru frá þingkosningum í Svíþjóð og enn hefur ekki tekist að mynda nýja ríkisstjórn. Rauðgræna blokkin, sem samanstendur af fjórum vinstri- og miðjuflokkum; Jafnaðarmannaflokknum, Miðflokknum, Vinstri og Græningjum; tryggði sér nauman meirihluta á þingi í kosningunum gegn borgaralegu blokkinni og sitjandi ríkisstjórn. Ágreiningur milli tveggja flokka í rauðgrænu blokkinni hefur komið í ve

Erlent
Krefjast nýrra réttarhalda í máli Clancy
mbl.is·

Krefjast nýrra réttarhalda í máli Clancy

Ákæruvaldið í Massachusetts vill ný réttarhöld í máli hjúkrunarfræðingsins Lindsay Clancy sem myrti börnin sín þrjú á heimili þeirra í Duxbury í janúar 2023 og reyndi auk þess að fyrirfara sér í kjölfarið.

Erlent
Öruggur sigur Iotovu
mbl.is·

Öruggur sigur Iotovu

Iliana Iotova, sitjandi forseti Búlgaríu, sem er hlynnt viðræðum við Rússa og andvíg hernaðaraðstoð við Úkraínu, sigraði í seinni umferð búlgörsku forsetakosninganna í gær.

Erlent
„Við munum brotlenda“
mbl.is·

„Við munum brotlenda“

Á hljóðupptöku sem var birt á flugumferðarsíðunni liveatc.net heyrist einhver í stjórnklefa flugvélarinnar sem brotlenti í Flórída í gærkvöldi tilkynna um „miðlungs ókyrrð“.

Erlent
Gengu í minningu Carlos Manzo sem barðist gegn glæpagengjum
RÚV·

Gengu í minningu Carlos Manzo sem barðist gegn glæpagengjum

Hundruð manni fylktu í gær liði í borginni Uruapan í Mexíkó til að minnast borgarstjórans Carlos Manzo sem var myrtur í fyrra þar sem hann tók þátt í hátíðarhöldum á degi hinna dauðu. Manzo barðist ötullega gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í héraði sínu, Michoacán. Hann var mjög sýnilegur á samfélagsmiðlum, fór í eftirlitsferðir með lögreglumönnum og var viðstaddur handtökur. Vegna þes

Erlent
„Svívirði­leg svik“
Vísir·

„Svívirði­leg svik“

Þingkona demókrata í Michigan-ríki í Bandaríkjunum hefur lýst yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í öldungadeildarkosningunum í ríkinu. Ákvörðunin kemur í kjölfar harðvítugra deilna við frambjóðanda eigin flokks en spennan fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun nálgast nú suðupunkt.

Erlent
Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínu­manna og Rússa
Vísir·

Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínu­manna og Rússa

Netárásir voru gerðar á almannavarnarkerfi bæði Úkraínumanna og Rússa í nótt með þeim afleiðingum að fölsk skilaboð voru send á almenning um yfirvofandi árásir. Í tilefni Rússa virðist sem hluti almennings hafi verið varaður við því að kjarnorkuvopnaárás væri yfirvofandi.

Erlent
Reiðibylgja eftir árás
mbl.is·

Reiðibylgja eftir árás

Lögreglan í París lýsir eftir þremur mönnum sem grunaðir eru um að hafa varpað eldsprengjum að fimmtán lögreglumönnum í enn einum óeirðunum þar í borginni á laugardaginn þegar hundruð þúsunda mótmælenda héldu út á göturnar með tilheyrandi óeirðum, skemmdarverkum og átökum þriðju helgina í röð.

Erlent
Bækur Sally Rooney seljast sem aldrei fyrr á Írlandi
RÚV·

Bækur Sally Rooney seljast sem aldrei fyrr á Írlandi

Sala á bókum írska rithöfundarins Sally Rooney hefur aukist í bókabúðum á Írlandi og Norður-Írlandi. Bækurnar voru teknar úr sölu í Bretlandi eftir að útgefandi hennar, Faber, sagði ekki hægt að greiða henni tekjur af sölu bókanna. Ástæðan var sú að hún sagðist ætla að láta ágóðann renna til samtakanna Palestine Action, sem eru á bannlista breskra stjórnvalda samkvæmt skilgreiningu hryðjuverkalaga

Erlent
Iotova fyrsti kjörni kvenforseti Búlgaríu
RÚV·

Iotova fyrsti kjörni kvenforseti Búlgaríu

Iliana Iotova sigraði í seinni umferð forsetakosninganna í Búlgaríu í gær og er þar með fyrsti lýðræðislega kjörni kvenforseti Búlgaríu. Iotova vill nánari samskipti við Rússland og er mótfallin hernaðaraðstoð Evrópulanda við Úkraínu. Hún hefur raunar setið í embætti forseta síðan í janúar en var áður varaforseti. Hún tók við embættinu þegar forveri hennar, Rumen Radev, lét af embætti til að gegna

Erlent
Nálar og skrúfur í hrekkjavökunammi í Þýskalandi
RÚV·
Sama málið · 2 miðlar

Nálar og skrúfur í hrekkjavökunammi í Þýskalandi

Þýska lögreglan rannsakar mál þar sem nálar, málmskrúfur og aðrir hvassir hlutir fundust í sælgæti sem börn söfnuðu á hrekkjavökunni. Deutsche Welle greinir frá . Tilkynningar bárust frá nokkrum héröðum í Þýskalandi, þar á meðal frá Thüringen, Baden-Württemberg, Bæjaralandi, Neðra-Saxlandi og Rínarlandi-Pfalz. Í Nürnberg beit barn í falda nál en varð ekki meint af. Þá er greint frá að minnsta kost

Erlent
Tölvuárásir gerðar á forrit Úkraínu og Rússlands sem vara við árásum
RÚV·

Tölvuárásir gerðar á forrit Úkraínu og Rússlands sem vara við árásum

Smáforrit sem sendir Úkraínumönnum tilkynningar um yfirvofandi árásir varð fyrir tölvuárás í gær. Úkraínski flugherinn greinir frá þessu. Þrjár tilkynningar bárust með mínútu millibili en sú fyrsta barst klukkan 22.47 að staðartíma í gær, eða 20.47 að íslenskum tíma. Í tilkynningunum var fyrst lýst yfir geislunarógn, þá kjarnorkuógn og að lokum hættu á efnavopnaárás. Að því búnu fengu allir notend

Erlent

Í gær

Níu látnir þegar flugvél hrapaði í Flórída
RÚV·

Níu látnir þegar flugvél hrapaði í Flórída

Níu manns létust þegar lítil flugvél hrapaði á íbúðarhverfi í suðurhluta Flórída í dag. Viðbragðsaðilar að störfum á vettvangi.AP/FR171907 AP / Mark Elias Á myndskeiðum sem birt hafa verið af slysinu sést flugvélin koma nánast lóðrétt niður á miklum hraða. Með nefið á undan skall flugvélin á jörðinni með þeim afleiðingum að mikil eldkúla myndaðist. Eftir hrapið sást brennandi gígur skammt frá fjöl

Erlent
Trump freistar þess að stöðva „bláu bylgjuna“
Heimildin·

Trump freistar þess að stöðva „bláu bylgjuna“

Repúblikanar lögðu í dag lokahönd á baráttu sína fyrir þingkosningarnar í Bandaríkjunum til að afstýra þeim mikla ósigri sem þeim er spáð. Demókratar sækjast eftir meirihluta á þingi og vilja þannig í fyrsta sinn setja skorður við fordæmalausri ásókn Donalds Trump forseta í aukin völd. Kannanir benda til þess að demókratar séu nánast öruggir um að ná meirihluta af repúblikönum...

Erlent
Nær „kommúnistabjáninn James Talaskrípó“ Texas?
RÚV·

Nær „kommúnistabjáninn James Talaskrípó“ Texas?

Slagurinn um öldungadeildarsætið í Texas gæti orðið einn sá mest spennandi í þingkosningunum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Demókratar hafa ekki átt sætið í meira en 30 ár. Kosið er um 35 sæti af 100 í öldungadeildinni. Þar eru Repúblikanar með 53 þingmenn og Demókratar 47. Af þessum 35 sem kosið verður um eru 22 rauð, eða tilheyra Repúblikönum, og 13 blá, eða tilheyra Demókrötum. Mjótt er á munum m

Erlent
Yfirhalning hafi verið nauð­syn­leg
Vísir·

Yfirhalning hafi verið nauð­syn­leg

Pólski forsætisráðherrann Donald Tusk hefur heitið því að stjórnlagadómstóll landsins muni starfa í samræmi við lög í kjölfar þess að forsetinn Karol Narwoci sakaði Tusk um að taka yfir dómstólinn. Tusk segir að yfirhalningin á dómstólum hafi verið nauðsynleg.

Erlent
Rannsaka bensínsprengjuárás sem tilraun til manndráps
RÚV·

Rannsaka bensínsprengjuárás sem tilraun til manndráps

Franskur lögreglumaður brenndist illa þegar bensínsprengju var kastað að honum í mótmælum í París í gær. Sprengjan sprakk við fætur mannsins og læstist eldurinn í föt hans. Maðurinn hlaut annars stigs bruna. Lögregla rannsakar málið sem tilraun til manndráps. Enginn hefur verið handtekinn. Mótmæli héldu áfram í Frakklandi í gær, þriðju helgina í röð, en minna var um skemmdarverk en áður. Þó voru h

Erlent
Serbneskur lögreglustjóri handtekinn
mbl.is·

Serbneskur lögreglustjóri handtekinn

Saksóknaraembættið í Serbíu greindi frá því að yfirmaður rannsóknarlögregludeildar hefði verið handtekinn í dag, grunaður um misbeitingu valds í starfi, en neitaði því þó að handtakan tengdist kosningum sem fram fóru fyrir viku.

Erlent
Rústir einar blasa nú við á toppi Kehlstein
mbl.is·

Rústir einar blasa nú við á toppi Kehlstein

Bruninn mikli sem lagði Arnarhreiðrið, eða Kehlsteinhaus, í þýsku Ölpunum að mestu í rúst aðfaranótt 24. október sl. hefur á ný vakið spurningar um varðveislu á sögulegum mannvirkjum sem tengjast Þriðja ríki Þýskalands.

Erlent
800 handteknir í Frakklandi
mbl.is·

800 handteknir í Frakklandi

Á áttunda hundrað manns voru handteknir í mótmælum í Frakklandi um helgina að sögn innanríkisráðherra landsins í dag, degi eftir að hundruð þúsunda höfðu mótmælt hækkandi verðlagi og ójöfnuði.

Erlent
„Frakk­land má ekki vera fyrir­mynd í þessum efnum“
Vísir·

„Frakk­land má ekki vera fyrir­mynd í þessum efnum“

Efnt var til mótmæla í ríflega þrjátíu borgum Þýskalands um helgina en þau eru skipulögð af ungliðahreyfingu sem mótmælir herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefst aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerða í loftslagsmálum. Mótmælin fóru mestmegnis friðsamlega af stað í gærmorgun en þegar tók að rökkva færðist harka í leikinn.

Erlent
Trump muni ekki stjórna lengd næsta stríðs
mbl.is·

Trump muni ekki stjórna lengd næsta stríðs

Það yrði ekki Donald Trump Bandaríkjaforseti sem réði því hversu lengi hugsanlegt stríð við Írani í framtíðinni stæði, að sögn talsmanns íranska hersins sem varar við því að það gæti staðið lengur en fyrri átök.

Erlent
Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti
RÚV·

Novo (Nordisk) á krossgötum: Úr ævintýralegum vexti í 50% hrun á verðmæti

Danski lyfjarisinn Novo, sem hafði þá nýverið breytt nafninu sínu úr Novo Nordisk, hélt markaðsdag 21. september. Forsvarsmenn fyrirtækisins sögðust hlakka til að kynna framtíðaráform sín og vera sannfærðir um að framtíðin væri björt. Ekki væri samt nóg að starfsmennirnir væru einhuga, það þyrfti líka að sannfæra alla hina. „Þetta byrjar með smá sögu, þar sem við segjum hvert við ætlum að fara, hv

Erlent
Binance opnar fyrir úttektir á ný
RÚV·

Binance opnar fyrir úttektir á ný

Fólk getur aftur tekið út rafmyntir í kauphöllinni Binance. Rafmyntum að andvirði á áttunda hundrað milljarða íslenskra króna var stolið í tölvuárás á fimmtudag. Eftir það frysti Binance eignir sínar og lokaði fyrir úttektir. Bandaríska alríkislögreglan (FBI) segir norðurkóreska hópinn TraderTraitor bera ábyrgð á ráninu sem er talið það stærsta sinnar tegundar til þessa. Binance er stærsta rafmynt

Erlent
Þetta getur hjálpað þér að fara fyrr á fætur
DV·

Þetta getur hjálpað þér að fara fyrr á fætur

Það er hrein og bein þjáning fyrir suma að þurfa að fara á fætur á morgnana. Sérstaklega fyrir þá sem elska að sofa frameftir og eru ekta B-manneskjur. Það getur reynst þessum hópi sérstaklega erfitt að komast á fætur.

Erlent
FBI segir Norður-Kóreu standa að baki rafmyntaþjófnaði
mbl.is·

FBI segir Norður-Kóreu standa að baki rafmyntaþjófnaði

Bin­ance, stærsta raf­mynta­kaup­höll heims, greindi frá því í dag að úttektir hefðu verið opnaðar á ný eftir að eignum að verðmæti meira en 6 milljarða dala var stolið frá rafmyntakauphöllinni í umfangsmiklu tölvuinnbroti á dögunum sem bandaríska alríkislögreglan FBI segir Norður-Kóreu bera ábyrgð á.

Erlent
Serbar minnast slyssins sem hratt mótmælaöldunni af stað
RÚV·

Serbar minnast slyssins sem hratt mótmælaöldunni af stað

Búist er við að þúsundir Serba komi saman á minningarathöfn í Novi Sad, næst stærstu borg landsins í dag. Fyrsta nóvember fyrir tveimur árum hrundi steypt þak lestarstöðvar í borginni með þeim afleiðingum að 16 manns létust, þar á meðal tvær systur sem voru aðeins sex og tíu ára gamlar. Slysið varð kveikjan að miklum mótmælum gegn ríkjandi stjórnvöldum og leiddi það að endingu til falls hægriflokk

Erlent
Búlgarar velja á milli Evrópu og Rússlands í dag
RÚV·

Búlgarar velja á milli Evrópu og Rússlands í dag

Búlgarar ganga að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninga í dag. Iliana Iotova er forseti Búlgaríu en hún þykir höll undir Rússland.EPA / BORISLAV TROSHEV Kosningabaráttan hefur verið hörð en frambjóðendurnir tveir eru með gjörólíka sýn á stríðið í Úkraínu og tengsl Búlgaríu við Rússland. Sitjandi forseti, Iliana Iotova vill eiga í frekari samskiptum við rússnesk stjórnvöld og hún er andvíg he

Erlent
Trump: Getum gert það á tíu mínútum
mbl.is·

Trump: Getum gert það á tíu mínútum

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Bandaríkin hefðu lamað stóran hluta hers Írans en ættu enn eftir að „sjá um“ eitt eða tvö skotmörk, á sama tíma og stjórnvöld í Teheran vöruðu við hefndaraðgerðum yrði ráðist á landið.

Erlent
Drónaárás hæfði iðnaðarfyrirtæki skammt frá Moskvu
RÚV·

Drónaárás hæfði iðnaðarfyrirtæki skammt frá Moskvu

Rússnesk stjórnvöld greindu frá því í dag að drónaárás hefði hæft iðnaðarfyrirtæki austan við Moskvu í nótt. Úkraínskir hermenn undirbúa dróna fyrir flugtak.EPA / Maria Senovilla Ekki var tilgreint hvers konar starfsemi varð fyrir árásinni en áður hafði Úkraína tilkynnt um drónaárás á stóra olíuhreinsistöð. Héraðsstjóri Nizhny Novgorod-héraðs, þar sem drónaárásin var gerð, segir enn fremur í yfirl

Erlent
Einn látinn og þúsundir misst allt sitt í rigningum á Galapagos
RÚV·

Einn látinn og þúsundir misst allt sitt í rigningum á Galapagos

Úrhellisrigning hefur verið á Galapagoseyjum í Austur-Kyrrahafi síðan síðdegis á föstudag. Að minnsta kosti einn hefur látist og tveggja er saknað. Þá hafa þúsundir fjölskyldna neyðst til að yfirgefa heimili sín. Úrkoman er sögð tengjast veðurfyrirbrigðinu El Niño, sem hefur magnað upp rigningar, storma og gróðurelda víða um heim undanfarið. Íbúar á eyjunni Santa Cruz, sem er fjölmennasta eyjan í

Erlent
Aftur birtir Trump sérkennilega mynd af Grænlandi
RÚV·

Aftur birtir Trump sérkennilega mynd af Grænlandi

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur enn eina ferðina deilt sérkennilegri mynd af Grænlandi á samfélagsmiðli sínum, Truth Social. Enginn texti fylgir myndinni en hún sýnir norðurhvel jarðar með Grænland í miðjunni. Í þetta sinn hefur landinu verið umbreytt í risastóra herstöð með bandaríska fánann dreginn að hún. Danska ríkisútvarpið greinir frá . Í september skrifuðu Grænland, Bandaríkin og Danmö

Erlent
Kólumbískir uppreisnarmenn drepnir af venesúelska hernum
RÚV·

Kólumbískir uppreisnarmenn drepnir af venesúelska hernum

Herinn í Venesúela réðist til atlögu gegn kólumbískum vinstrisinnuðum uppreisnarmönnum sem tilheyra Þjóðfrelsishernum ELN (s. Ejército de Liberación Nacional). Venesúelski herinn að störfum skammt frá landamærum Kólumbíu.EPA / Mario Caicedo Uppreisnarmennirnir höfðu slegið upp búðum Venesúelamegin við landamærin. Fjöldi manns er sagður hafa látist í árásinni. Þetta er í fyrsta skipti sem herinn í

Erlent
Tusk staðráðinn í að taka dómstól í gegn en harðlínuhægrimenn mótmæla
RÚV·

Tusk staðráðinn í að taka dómstól í gegn en harðlínuhægrimenn mótmæla

Donald Tusk forsætisráðherra Póllands og Karol Nawrocki forseti landsins hafa báðir ítrekað afstöðu sína í mikilli deilu sem spunnist hefur um skipanir við æðsta dómstól Póllands, stjórnlagadómstólinn. Pólska ríkisútvarpið TVP greinir frá því að Nawrocki hafi í gær átt fund með hægriflokkum landsins til að ræða stöðuna. Flokkarnir, sem eru annars ósammála um margt, hafa náð samstöðu í málefnum dóm

Erlent
Ólétt kona skotin til bana í hrekkjavökubúð
RÚV·

Ólétt kona skotin til bana í hrekkjavökubúð

Ólétt kona var skotin til bana og sex voru særðir þegar skotum var hleypt af í skammtímaverslun sem selur hrekkjavökuvarning í San Fransisco í Bandaríkjunum á föstudagskvöld. Los Angeles Times greinir frá . Lögreglumenn brugðust við útkalli klukkan 8.30 að staðartíma, eða hálf fjögur um nótt að íslenskum tíma. Margar fjölskyldur voru í búðinni að versla hrekkjavökuvarning á síðustu stundu. Sex kar

Erlent

Síðustu 7 dagar

Áfram mótmælt í Evrópu og Molotov-kokteil kastað í lögregluþjón
RÚV·

Áfram mótmælt í Evrópu og Molotov-kokteil kastað í lögregluþjón

Ungmenni gripu til mótmæla í tugum þýskra borga í dag. Þau segja pólitíska elítu hunsa áhyggjur þeirra og kalla eftir afsögn Friedrich Merz Þýskalandskanslara. Mótmælin voru skipulögð af hópi sem kallast „GenZ regelt!“ sem þýða mætti sem „Z-kynslóðin sér um þetta!“ Hópurinn segir að 120 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum sem lögregla segir hafa að mestu verið „mjög friðsæl“. Í Hamborg og Kö

Erlent
Algengar orsakir risvandamála og einfaldar lausnir á þeim
DV·

Algengar orsakir risvandamála og einfaldar lausnir á þeim

Viljinn er til staðar og það er löngunin einnig en jafnaldrinn vill bara ekki rísa. Kannast þú við þetta?Að fá standpínu er flókið ferli þar sem margir þættir koma við sögu. Að sögn sérfræðinga eru eftirtaldar orsakir þær algengustu þegar kemur að risvandamálum.

Erlent
„Sum hverfi eru ekki til lengur“
RÚV·

„Sum hverfi eru ekki til lengur“

Íbúar úkraínska bæjarins Oleshky eru loks komnir á öruggara svæði eftir margra mánaða umsátur Rússlandshers. Það var langþráð stund þegar fólk steig út úr rútunni í dag. Leiðin var líka löng því það er stórhættulegt og ófært með öllu að fara beint yfir víglínuna. Frá bænum sínum fóru þau með rútu til Anapa í Rússlandi. Þaðan var þeim flogið til Gomel í Belarús og komust þar loks upp í rútuna sem f

Erlent
Lögreglumenn stóðu í ljósum logum í París – óeirðir víða um Evrópu
Nútíminn·

Lögreglumenn stóðu í ljósum logum í París – óeirðir víða um Evrópu

Að minnsta kosti tveir lögreglumenn urðu stuttlega alelda þegar eldsprengjum var kastað að lögreglu við lok mótmæla í París nú í kvöld. Félagar þeirra slökktu eldinn en ekki hefur verið greint frá líðan mannanna. Einnig kom til átaka í Marseille og nokkrum þýskum borgum. Mótmælin höfðu að mestu farið friðsamlega fram áður en hópar sneru […] Greinin Lögreglumenn stóðu í ljósum logum í París – óeirð

Erlent
Trump ekki tekið ákvörðun um árásir á Íran
mbl.is·

Trump ekki tekið ákvörðun um árásir á Íran

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Donald Trump Bandaríkjaforseta ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort Bandaríkin muni hefja árásir á Íran að nýju og ljúka þar með þeirri pattstöðu sem ríkir í friðarviðræðum milli ríkjanna.

Erlent
Datt ofan í gröf föður síns og lést
DV·

Datt ofan í gröf föður síns og lést

Karlmaður lést nýlega þegar hann datt ofan í gröf föður síns. Maðurinn var viðstaddur útför vinar síns í sama kirkjugarði og faðir hans hvílir í. Hann settist á legsteininn á leiði föður síns til að hvíla sig en jörðin gaf sig undan honum og hann datt ofan í gröf föður síns.

Erlent
Araghchi segir engin áform um friðarviðræður
RÚV·

Araghchi segir engin áform um friðarviðræður

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, segir engin áform um friðarviðræður við Bandaríkin þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af því að átök brjótist út að nýju. Araghchi sagði í viðtali við fréttastofu Al Jazeera í dag að eins og staðan er núna séu allar vangaveltur um viðræður aðeins getgátur fjölmiðla. Við núverandi aðstæður sæi Íran enga ástæðu til að funda með Bandaríkjamönnum. Afstaða Írana væri

Erlent
Bandaríkin vara við árás í Moskvu
mbl.is·

Bandaríkin vara við árás í Moskvu

Bandaríska sendiráðið í Moskvu, höfuðborg Rússlands, hefur sent frá sér öryggisviðvörun vegna trúverðugrar hótunar um atburð sem gæti valdið miklu manntjóni í borginni í dag.

Erlent
Mónakó tekið af gráa lista FATF
Heimildin·

Mónakó tekið af gráa lista FATF

Alþjóðlegi aðgerðahópurinn gegn peningaþvætti (FATF) tilkynnti í gær að Mónakó hefði verið tekið af „gráum lista“ hópsins. Tvö ár eru síðan furstadæmið var sett á lista yfir ríki sem sæta auknu eftirliti. Búlgaría, Lýðstjórnarlýðveldið Kongó og Fílabeinsströndin voru einnig tekin af listanum, að sögn FATF eftir fund samtakanna sem haldinn er tvisvar á ári. Ríkin hefðu lokið þeim aðgerðaáætlunum se

Erlent
Engin fjölskyldumynd á G20-fundi í Atlanta
RÚV·

Engin fjölskyldumynd á G20-fundi í Atlanta

Úkraínuher fær að kaupa Patriot-varnarflaugar sem herinn hefur vantað frá Bandaríkjunum. Hefðbundinni myndatöku á fundi utanríkisráðherra G20-ríkjanna í Atlanta var slaufað því sumir vildu ekki vera með rússneskum kollega sínum á mynd. 2,1 milljarður dollara, eða andvirði 250 milljarða íslenskra króna, er upphæðin sem Úkraína þarf að reiða fram. Bandaríska utanríkisráðuneytið tilkynnti viðskiptin

Erlent
Fimmtán liggja enn á gjörgæslu
mbl.is·

Fimmtán liggja enn á gjörgæslu

Fjöldi slasaðra sem enn liggja á sjúkrahúsi eftir lestarslysið hörmulega á Spáni fyrr í vikunni er kominn niður í 34. Það eru fimm færri en í gær, að sögn fréttastofunnar Efe.

Erlent
Æðsti leiðtogi Írans varar við nýjum árásum
mbl.is·

Æðsti leiðtogi Írans varar við nýjum árásum

Mojtaba Khamenei, æðsti leiðtogi Írans, varaði í dag Bandaríkin og Ísrael við því að hefja stríð að nýju. Hann fundaði með æðstu herforingjum landsins og fyrirskipaði þeim að svara hvers kyns árás Bandaríkjanna eða Ísraels með viðbrögðum sem séu ekki bundin við tiltekið landsvæði.

Erlent
Átök um æðsta dómstól Póllands
RÚV·

Átök um æðsta dómstól Póllands

Óeirðalögregla var kölluð út að stjórnlagadómstól Póllands í Varsjá í gærkvöld vegna átaka um skipanir dómara við hann. Lögregla þurfti að koma í veg fyrir að mótmælendur kæmust inn í bygginguna. Þrír voru handteknir. Slegið hefur í brýnu á milli ríkisstjórnar Donalds Tusk forsætisráðherra og hægri- og íhaldsflokksins Laga og réttlætis (PiS) vegna dómaramála við æðsta dómstól Póllands undanfarið.

Erlent
Búa sig undir þriðju helgi mót­mæla
Vísir·

Búa sig undir þriðju helgi mót­mæla

Sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf víða í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að búa sig undir þriðju helgi mótmæla þar í landi. Lestarstöðvum í París hefur verið lokað og víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana. Þá eru þýsk yfirvöld með varann á vegna mótmæla í yfir þrjátíu borgum Þýskalands í dag.

Erlent
Bolsonaro segist vera fórnarlamb ofsókna
RÚV·
Sama málið · 2 miðlar

Bolsonaro segist vera fórnarlamb ofsókna

Flávio Bolsonaro, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Brasilíu, segir að hann hafi flúið til Bandaríkjanna þar sem hann telji sig fórnarlamb ofsókna í heimalandi sínu. Bolsonaro, sem tapaði í seinni umferð forsetakosninganna á sunnudag fyrir Luiz Inacio Lula da Silva forseta, yfirgaf landið á þriðjudag. Hann kom til Flórída í einkaþotu á miðvikudag, eftir ferðalag um Argentínu og Ekvador. „Ofsóknirn

Erlent
Gervigreindarfyrirtæki auðvelda síðum að hafna vefsöfnun
RÚV·

Gervigreindarfyrirtæki auðvelda síðum að hafna vefsöfnun

OpenAI, Google, Microsoft og Anthropic lofuðu í gær að veita fjölmiðlum og öðrum vefsíðum eina aðgangsleið til að koma í veg fyrir að efni þeirra sé skrapað til að þjálfa gervigreindarlíkön. Fyrirtækin hafa verið harðlega gagnrýnd af fréttamiðlum og fleirum fyrir það gríðarlega magn texta sem þau sækja í leyfisleysi. Þau hafa einnig staðið í lagadeilum, en fjölmiðillinn New York Times er til að my

Erlent
Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi
RÚV·

Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi

25 sjómönnum var bjargað úr brennandi olíuflutningaskipi á Hormússundi í gær eftir að skipið varð fyrir árás. Yfirvöld í Óman komu skipverjunum til bjargar. Skip í biðstöðu á HormússundiAP/ISNA / Amirhosein Khorgooi Íranski byltingarvörðurinn segir að skipið hafi slökkt á öllum siglinga- og staðsetningarbúnaði og reynt, með stuðningi bandaríska hersins, að sigla leið sem var þeim óheimil. Íran hef

Erlent
Hótanir dómsmálaráðuneytis tímabundið stöðvaðar
RÚV·

Hótanir dómsmálaráðuneytis tímabundið stöðvaðar

Úrskurður Trinu Thompson, dómara í norðurhluta Kaliforníu, heftir aðgerðir stjórnarliða Trumps sem hafa gert tilraunir til að takmarka atkvæðagreiðslu fólks í þingkosningunum 3. nóvember sem þeir telja að séu mögulega ekki bandarískir ríkisborgarar. „Hinir ákærðu skulu ekki hóta, hræða eða þvinga kjörstjórnendur eða starfsmenn ríkis eða sveitarfélaga til að krefjast þess að þeir stöðvi úrvinnslu a

Erlent
Tveir Kínverjar dæmdir í fangelsi fyrir njósnir
RÚV·

Tveir Kínverjar dæmdir í fangelsi fyrir njósnir

Tveir kínverskir ríkisborgarar voru dæmdir í fangelsi í Kaliforníu í dag eftir að þeir viðurkenndu að hafa reynt að fá starfsmenn bandaríska hersins til að njósna fyrir kínversk yfirvöld. Þeir voru handsamaðir í júní 2025. Mennirnir, Liren Lai og Yuance Chen, játuðu sig seka og voru dæmdir í 30 mánaða alríkisfangelsi og þriggja ára skilorðsbundið eftirlit að því loknu. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkja

Erlent
Rússar herja á orkuinnviði í Úkraínu
RÚV·

Rússar herja á orkuinnviði í Úkraínu

Rússlandsher gerði árásir á orkuver í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í kvöld með þeim afleiðingum að fjögur svæði borgarinnar eru án rafmagns. Fréttamiðillinn Kyiv Independent greinir frá . Rússar gerðu drónaárás á Trypilska-hitaveituna skammt frá Kyiv 26. október og hreinsunarstarf hófst samstundis.AP / Efrem Lukatsky Þá sagði Vitali Klitschko borgarstjóri á samfélagsmiðlinum Telegram að þrjár drónaárá

Erlent
Beita nýrri meðferð við Parkinsonsveiki
mbl.is·

Beita nýrri meðferð við Parkinsonsveiki

Sjúklingur hefur gengist undir nýstárlega stofnfrumumeðferð við Parkinsonsveiki í Japan. Þetta er fyrsta ígræðslan sem framkvæmd er eftir að meðferðin hlaut skilyrt samþykki þar í landi og sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum á þeim grundvelli.

Erlent
Samþykkja sölu á 500 Patriot flaugum til Úkraínu
RÚV·

Samþykkja sölu á 500 Patriot flaugum til Úkraínu

Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur samþykkt sölu á 500 Patriot-eldflaugum til Úkraínu, að verðmæti 2,1 milljarða bandaríkjadala, andvirði rúmlega 250 milljarða íslenskra króna. Reuters greinir frá. Flaugarnar eru Úkraínumönnum mikilvægar til að verjast loftárásum Rússa. Í tilkynningu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu segir að „viðskiptin muni styðja við utanríkisstefnu Bandaríkjanna og markmið þeir

Erlent
Tveggja barna faðir drukknaði þegar hann reyndi að bjarga mávi
DV·

Tveggja barna faðir drukknaði þegar hann reyndi að bjarga mávi

Hörmulegt slys varð við strendur Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn sunnudag þegar 31 árs gamall tveggja barna faðir drukknaði eftir að hann reyndi að koma mávi til bjargar.Maðurinn hét William „Stone“ Romberg og var hann við veiðar ásamt vinum sínum nærri Carillon Beach, um 35 kílómet

Erlent
Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla
Heimildin·

Meta semur sig frá dómsmáli um skaða samfélagsmiðla

Meta hefur gert sátt utan dómstóla í fordæmisgefandi máli vegna meints skaða af samfélagsmiðlum. Þetta sögðu lögmenn stefnenda í málinu í dag. Snap er því eini fyrirtækið sem stendur eftir í málinu en réttarhöld hefjast í Los Angeles í næstu viku. „Við erum áfram staðráðin í að auka öryggi barna á samfélagsmiðlum og draga tæknifyrirtæki til ábyrgðar. Við erum ánægð...

Erlent
Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum
RÚV·

Úkraínumenn sagðir leggja aftur til atlögu að rússneskum olíuhreinsistöðvum

Úkraínskir hermenn.EPA / SERGEY KOZLOV Úkraínumenn hafa að nýju hafið árásir á ný á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi eftir stutt hlé. Þetta sagði varaforsætisráðherra Rússlands í dag og sagði það koma niður á fyrirhuguðum útflutningi landsins á dísilolíu. Yfirvöld í Úkraínu hafa ekkert tjáð sig um málið. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur um nokkra hríð þrýst á Úkraínu að hætta þessum árásum, s

Erlent