Íþróttir

Fréttir í flokknum Íþróttir frá öllum miðlum safnsins.

Fréttatónn

Nýjast

Amorim gæti óvænt reynt að kaupa ungan leikmann United
DV·

Amorim gæti óvænt reynt að kaupa ungan leikmann United

Ruben Amorim, stjóri AC Milan, hefur áhuga á að fá Leny Yoro, varnarmann Manchester United, til liðs við sig í janúar.Ítalski miðillinn Calciomercato greinir frá þessu en Amorim þekkir Frakkann vel frá tíma sínum hjá United. Yoro lék stóra rullu undir stjórn Portúgalans.

Íþróttir
Carrick klárar ekki mánuðinn - Getur United fallið?
Fotbolti.net·

Carrick klárar ekki mánuðinn - Getur United fallið?

Michael Carrick er í ansi heitu sæti á Old Trafford, það hvorki gengur né rekur hjá liðinu en síðast vannst deildarleikur í lok ágúst. Manchester United er markatölunni frá falli, leikmenn hauslausir inn á vellinum og eru margir að bíða eftir því að United geri breytingar, og einfaldasta breytingin er að breyta um stjóra. Veðbankar hafa mjög litla trú á því að Carrick lifi af mánuðinn í starfi.

Íþróttir
Heldur starfinu í bili
DV·

Heldur starfinu í bili

Regis Le Bris, knattspyrnustjóri Sunderland, fær meiri tíma til að snúa gengi liðsins við þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu.

Íþróttir
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Eyjafréttir·

Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM

Glódís Dúna Óðinsdóttir, leikmaður ÍBV í handbolta, hefur verið valin í 16 manna lokahóp U17 ára landsliðs Íslands sem tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins 2027. Rakel Ósk Bragadóttir og Arnar Daði Arnarsson, þjálfarar liðsins, tilkynntu hópinn fyrir keppnina sem fram fer í Færeyjum dagana 26.–28. nóvember. Ísland leikur í riðli með Færeyjum, Ísrael og Tyrklandi. […] The post Glódís Dúna valin í

ÍþróttirSuðurland
United með vinstri bakvörð í sigtinu fyrir janúargluggann
DV·

United með vinstri bakvörð í sigtinu fyrir janúargluggann

Alejandro Balde, vinstri bakvörður Barcelona, gæti yfirgefið félagið í janúarglugganum og Manchester United er sagt fylgjast grannt með stöðu hans.Samkvæmt portúgalska miðlinum Record, sem vísar í Marca, er Barcelona að skoða breytingar á varnarlínu sinni og gæti Balde verið á förum.

Íþróttir
Rúnar Kristins: Skrítið að þeir hafi ekki fengið meiri athygli
Fotbolti.net·

Rúnar Kristins: Skrítið að þeir hafi ekki fengið meiri athygli

Tveir ungir leikmenn voru í stóru hlutverki hjá Fram í Bestu deildinni í sumar. Freyr Sigurðsson (2005) átti mjög gott tímabil inn á miðjunni og Þorri Stefán Þorbjörnsson (2006) var í varnarlínunni. Þorri hefur verið orðaður við atvinnumennsku en til þessa hefur lítið heyrst af þeim möguleika hjá Frey. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var spurður hvort þessir tveir ungu menn gætu farið út í atvinnumennsku í vetur.

Íþróttir
Emil: Stormur og svart ský yfir Stjörnunni
Fotbolti.net·

Emil: Stormur og svart ský yfir Stjörnunni

Tímabilið hjá Stjörnunni gekk alls ekki eins og smurt. Stjarnan þurfti tvisvar að gera þjálfarabreytingar, endaði tímabilið með þriggja þjálfara teymi til bráðabirgða og skömmu fyrir lok tímabilsins var tilkynnt að Rúnar Páll Sigmundsson tæki við liðinu eftir tímabilið. Emil Atlason hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin tímabil. Emil er reynslumikill framherji sem var markahæsti leikmaður deildarinnar 2023. Emil ræddi við Fótbolta.net og var spurður út í tímabilið í ár.

Íþróttir
Yfirferðin með Elízu Gígju: Rán um hábjartan dag í London
Fotbolti.net·

Yfirferðin með Elízu Gígju: Rán um hábjartan dag í London

<p>Toppslagur umferðarinnar í enska boltanum fór fram í höfuðborginni þegar London City Lionesses tóku á móti ríkjandi meisturum Manchester City. Heimakonur voru með ótrúlega yfirburði í fyrri hálfleiknum en náðu ekki að nýta það og staðan var 0-0 í hálfleik. Það var svo Bunny Shaw sem kom gestunum yfir snemma í seinni hálfleik þegar hún slapp ein í gegn eftir sendingu frá Lauren Hemp. Shaw sýndi svo góða takta þegar hún skoraði í opið markið eftir að hafa komist fram hjá Mary Earps, sem stóð á milli stanganna í sínum fyrsta deildarleik fyrir London City. </p>

Íþróttir
Milner hljóp New York maraþonið
Fotbolti.net·

Milner hljóp New York maraþonið

James Milner tók þátt í sínu fyrsta maraþoni um helgina en hann hljóp hið vinsæla New York maraþon. Milner, sem er 40 ára, er búinn að leggja fótboltaskóna á hilluna og hefur tekið fram hlaupaskóna. Hann hljóp maraþonið á glæsilegum tíma; þremur klukkustundum, níu mínútum og fjórum sekúndum. Milner hljóp til styrktar góðu málefni og notaði gervigreind til að búa til æfingaprógramm áður en hann tók þátt í hlaupinu. Milner varð enskur meistari með Manchester City og Liverpool á ferli sínum, auk þess að hann vann Meistaradeildina með síðarnefnda félaginu. Síðustu ár ferils síns lék hann með Brighton.

Íþróttir
Þór/KA heyrir sögunni til í fótboltanum
RÚV·

Þór/KA heyrir sögunni til í fótboltanum

Akureyrarfélögin Þór og KA hafa nú slitið samstarfi sínu um sameiginlegan meistaraflokk kvenna í fótbolta eftir áratugalangt samstarf. Keppt var undir merkjum Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) á árunum 1993-1998 en Akureyrarliðið lék svo undir nafninu Þór/KA árin 1999 og 2000. Ári seinna kom svo Knattspyrnufélag Siglufjarðar (KS) inn í samstarfið og Þór/KA/KS spilaði í Íslandsmóti kvenna á árunum 2

Íþróttir
Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart
Fotbolti.net·

Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart

KA gaf út tilkynningu í dag þess efnis að félagið ætlaði sér ekki að endurnýja samstarfssamning við Þór en félögin hafa saman komið að sameinuðu liði Þórs/KA í kvennaboltanum síðustu áratugi. Þór/KA var myndað 1999 og varð Akureyrarliðið Íslandsmeistari 2012 og 2017. Liðið endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar í ár eftir að hafa bjargað sæti sínu í deildinni með sigri í lokaumferðinni. Þór verður því með lið í Bestu deildinni en KA byrjar í 2. deild. Í tilkynningu KA kemur fram að framtíðarsýn félagsins sé sú að kvennafótbolti verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur í KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk.

Íþróttir
Vilja að Man Utd losi sig við Martínez
Fotbolti.net·

Vilja að Man Utd losi sig við Martínez

Lisandro Martínez varnarmaður Manchester United hefur verið mikið í umræðunni en hann fékk rautt spjald í tapinu gegn Chelsea. Þegar Carrick var spurður út í brottvísun Martínez eftir leik vildi hann ekki gagnrýna leikmanninn opinberlega.

Íþróttir
Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld
Eyjafréttir·

Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst í kvöld

Skáknámskeið fyrir fullorðna byrjendur hefst hjá Taflfélagi Vestmannaeyja í kvöld, mánudaginn 2. nóvember, kl. 20 í taflheimilinu að Heiðarvegi 9a. Námskeiðið hentar bæði þeim sem vilja læra skák frá grunni og þeim sem vilja rifja upp gamla takta. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg og þátttakendur þurfa ekki að taka neitt með sér. Lágmarksaldur er 13 […] The post Skáknámskeið fyrir byrjendur hefst

ÍþróttirSuðurland
KA slítur samstarfinu við Þór
Fotbolti.net·

KA slítur samstarfinu við Þór

Eins og greint var frá fyrr í dag var samstarfssamningur milli Þórs og KA um kvennaliðið Þór/KA runninn út. KA gaf svo út tilkynningu rétt í þessu þess efnis að félagið hefði tekið þá ákvörðun að endurnýja ekki samninginn.

Íþróttir
Fylkir og Þróttur halda Football and Fun í Egilshöll
Fotbolti.net·

Fylkir og Þróttur halda Football and Fun í Egilshöll

Alþjóðlegt knattspyrnumót eldri flokka, Football & Fun, fer fram í 19. skipti laugardaginn 7. nóvember í Egilshöll í Reykjavík. Um 50 knattspyrnulið með yfir 400 leikmenn frá yfir 10 löndum eru nú þegar skráð til þátttöku í mótinu. Mótið er eins og undanfarin ár haldið af Fylki og Þrótti í Reykjavík með stuðningi Reykjavíkurborgar og KSÍ.

Íþróttir
Markaveisla í Bestu deildinni í ár – Sögulegu tímabili lokið
Fotbolti.net·

Markaveisla í Bestu deildinni í ár – Sögulegu tímabili lokið

Það er óhætt að segja að lokaumferð Bestu deildar karla hafi boðið upp á mikla markaveislu en hvorki meira né minna en 38 mörk voru skoruð í leikjunum sex, sem er met í einni umferð í sögu efstu deildar karla á Íslandi. Þar bar hæst ótrúlegur 8-3 sigur KR gegn Breiðabliki og 4-4 jafntefli ÍA og Keflavíkur en í raun var markafjöldinn á nýliðnu tímabili með ólíkindum. Alls voru skoruð 646 mörk í 162 leikjum Bestu deildarinnar í sumar, eða 3,99 mörk að meðaltali í leik. Það er langhæsta markahlutfallið frá því tólf liða deildin tók til starfa árið 2008 og töluvert meira en við höfum átt að venjast undanfarin ár. En hvernig stendur þetta tímabil í sögulegu samhengi og hvaða lið áttu stærstan þátt í þessari ótrúlegu markaskorun?

Íþróttir
Mun West Ham reka stjórann?
Fotbolti.net·

Mun West Ham reka stjórann?

Framtíð Nuno Espírito Santo hjá West Ham er í óvissu eftir vonbrigði í byrjun tímabilsins. West Ham var talið langsigurstranglegasta liðið í Championship-deildinni en er í áttunda sæti eftir 3-1 tap gegn West Bromwich Albion um helgina.

Íþróttir
Nýtt nafn og nýr bakhjarl: Bæjarins Beztu taka yfir 1. deildina og landsleikina
Karfan.is·

Nýtt nafn og nýr bakhjarl: Bæjarins Beztu taka yfir 1. deildina og landsleikina

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) og Bæjarins Beztu Pylsur hafa undirritað nýjan þriggja ára samstarfssamning. Samningurinn felur í sér að næstefstu deildir landsins í körfubolta munu héðan í frá bera heiti fyrirtækisins og heita formlega Bæjarins Beztu deild karla og Bæjarins Beztu deild kvenna í stað 1. deildar. Auk nafngiftarinnar mun Bæjarins Beztu sjá um alla veitingasölu […] The post Nýtt

Íþróttir
Rúnar Kristins: Sá eini sem okkur langaði í
Fotbolti.net·

Rúnar Kristins: Sá eini sem okkur langaði í

<i>„Það er frábært að fá hann í Fram. Við viljum styrkja okkur, fáum inn reynslumikinn og öflugan leikmann í framlínuna og styrkjum framlínuna enn frekar,"</I> segir Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, um Emil Atlason sem var á laugardag kynntur sem nýr leikmaður félagsins. Emil, sem er 33 ára, kemur til Fram frá Stjörnunni og Rúnar þekkir vel til Emils eftir að hafa fengið hann í KR fyrir einum og hálfum áratug síðan.

Íþróttir
Nenad tekur níunda tímabilið með Ægi
Fotbolti.net·

Nenad tekur níunda tímabilið með Ægi

Nenad Zivanovic verður samkvæmt heimildum Fótbolta.net áfram þjálfari Ægis í Þorlákshöfn. Liðið verður í 2. deild á komandi tímabili eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni. Ægir byrjaði tímabilið ágætlega, komst í 8-liða úrslit bikarsins en fékk bara tvö stig í deildinni eftir maí.

Íþróttir
Erlendir leikmenn undir pressu – Hverjir eru í hættu á að missa vinnuna?
Karfan.is·

Erlendir leikmenn undir pressu – Hverjir eru í hættu á að missa vinnuna?

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fóru yfir sviðið í Bónus deildinni. Eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Bónusdeild karla er ljóst að pressan fer vaxandi á erlendu leikmönnunum. Félagarnir rýndu sérstaklega í framlag þeirra og stilltu upp lista yfir fimm evrópska leikmenn […] The post Erlendir leikmenn undir pressu – H

Íþróttir
Aston Villa hætt við að lögsækja Carragher
Fotbolti.net·

Aston Villa hætt við að lögsækja Carragher

Aston Villa hefur hætt við að lögsækja sparkspekinginn Jamie Carragher, sérfræðing Sky Sports og fyrrum leikmann Liverpool. Carragher sá sig knúinn til að biðjast afsökunar á ummælum sem hann lét falla um Aston Villa í spjallþættinum <i>Stick to Football</i> á dögunum.

Íþróttir
Ýmir ekki með í landsleikjunum
RÚV·

Ýmir ekki með í landsleikjunum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta kom saman til æfinga í Safamýri í dag. Hluti leikmannahópsins er þó enn á leið til landsins, eða þeir leikmenn sem spiluðu með félagsliðum sínum erlendis í gær. Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari segir nær alla leikmenn heila fyrir komandi leiki, en staðan á einhverjum lemstruðum leikmönnum verði skoðuð í dag. Þó sé ljóst að línumaðurinn og varnardrekin

Íþróttir
Samningur Þórs og KA runninn út - Fundað í vikunni
Fotbolti.net·

Samningur Þórs og KA runninn út - Fundað í vikunni

Kvennaliðið Þór/KA hefur verið til frá 1999 sem samstarf tveggja stærstu íþróttafélaganna á Akureyri í meistaraflokki kvenna. Samstarfið hefur einnig náð niður í elstu yngri flokkana. Nú er samstarfssamningur milli félaganna runnin út og hefur Fótbolti.net fengið ábendingar um að mögulega verði samstarfinu slitið, það sé þá frekar vilji KA megin að slíta samstarfinu. Það er þó alls ekki víst að svo verði raunin. Félögin munu samkvæmt heimildum Fótbolta.net hittast í vikunni og ræða stöðuna. Samningurinn hefur áður runnið út til lengri tíma en liðið hélt þó áfram að spila undir merkjum beggja félaga.

Íþróttir
Fjögur lið eiga séns – Hverjir fara upp í Bónusdeildina?
Karfan.is·

Fjögur lið eiga séns – Hverjir fara upp í Bónusdeildina?

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fóru þeir Davíð Eldur, Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í yfirferð á stöðunni í 1. deild karla. Heiðar, sem er harður stuðningsmaður Þórs Þorlákshafnar, ræddi stöðuna á sínum mönnum áður en félagarnir fóru yfir stóru myndina: Hvaða lið eiga raunhæfan möguleika á því að tryggja sér sæti í Bónusdeildinni […] The post Fjögur lið eiga séns – Hverjir fara upp

Íþróttir
Madueke skaut á Mac Allister: Hann reyndi að veiða mig
Fotbolti.net·

Madueke skaut á Mac Allister: Hann reyndi að veiða mig

Noni Madueke skaut á Alexis Mac Allister í viðtali eftir stórleik Liverpool og Arsenal í gær. Arsenal vann leikinn en í seinni hálfleik vildu einhverjir leikmenn Liverpool fá rauða spjaldið á Madueke sem er kantmaður Arsenal. Madueke nuddaði aðeins höfði sínu í Alexis Mac Allister sem féll með tilþrifum. Madueke var með gult spjald og slapp við að fá annað. Mac Allister hafði látið Martin Ödegaard heyra það og Jurrien Timber var ekki ánægður með hegðun Argentínumannsins. Madueke kom svo með seinni skipunum. Þeir Mac Allister og Timber fengu gula spjaldið.

Íþróttir
Komnir/farnir og samningslausir í Bestu og Lengjudeildinni
Fotbolti.net·

Komnir/farnir og samningslausir í Bestu og Lengjudeildinni

Íslandsmótinu lauk fyrir rúmri viku og félögin eru þegar farin af stað á leikmannamarkaðnum. Hér að neðan má sjá breytingarnar sem hafa átt sér stað á liðunum í Bestu og Lengjudeildinni frá því að sumarglugganum var skellt í lás. Félagaskiptaglugginn opnar formlega á nýju ári. Lánssamningar leikmanna hjá venslafélögum eru ekki á listanum. Varðandi leikmannasamninga er unnið út frá upplýsingum á heimasíðu KSÍ í bland við tilkynningar félaganna. Það er möguleiki á því að einhver villa sé í þessari samantekt. Hægt að senda ábendingar í tölvupósti á <a href="mailto:saebjorn@fotbolti.net">saebjorn@fotbolti.net</a> eða í einkaskilaboðum á <a href="https://twitter.com/saebjornth" target="_blank">Twitter.</a>

Íþróttir
Er 2-0 hættulegasta staðan í fótbolta? - Tölfræðin tekin fyrir
Fotbolti.net·
Sama málið · 2 miðlar

Er 2-0 hættulegasta staðan í fótbolta? - Tölfræðin tekin fyrir

Flestir fótboltaáhugamenn muna eftir ótrúlegri lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar árið 2022 þegar Manchester City tók á móti Aston Villa og þurfti á sigri að halda til þess að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Þegar rúmlega 20 mínútur voru eftir kom Philippe Coutinho Aston Villa í 2-0 og virtist titillinn vera að renna úr höndum City manna. Það var hins vegar ekki búið að skrifa síðasta kaflann í þessari ótrúlegu titilbaráttu en City skoraði þrjú mörk á aðeins fimm mínútum og tryggði sér titilinn með 3-2 sigri. Það er gjarnan talað um að 2-0 sé hættulegasta staðan í fótbolta og hafa margir sparkspekingar og þjálfarar varað við því að slaka á þegar tveggja marka forskoti er náð. En hversu mikil hætta er í raun og veru á því að tapa niður 2-0 forystu og skiptir einhverju máli hvenær liðið kemst tveimur mörkum yfir? Við ætlum að skoða áhugaverða tölfræði úr stærstu deildum Evrópu og nokkrar eftirminnilegar endurkomur.

Íþróttir
Myndskeið: Tíunda mark Sveindísar
mbl.is·

Myndskeið: Tíunda mark Sveindísar

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði sitt tíunda mark í sigri Angel City á Boston Legacy í lokaumferð deildarkeppninnar í bandarísku NWSL-deildinni í fótbolta í Angel City í gærkvöldi.

Íþróttir
Í fyrsta sinn hjá Liverpool
mbl.is·

Í fyrsta sinn hjá Liverpool

Liverpool átti í fyrsta sinn frá því að skráningar hófust tímabilið 2003-2004 ekki eitt einasta skot á rammann í tapi fyrir Englandsmeisturum Arsenal, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni á Anfield í gær.

Íþróttir
Bergur með tvö Íslandsmet á HM
RÚV·

Bergur með tvö Íslandsmet á HM

Bergur keppti í D-riðli 85 kílóa flokksins á HM í dag. Keppendum er raðað eftir styrkleika í riðla, þeir bestu keppa í A-riðli og svo koll af kolli. D-riðillinn var fyrstur og Bergur gerði vel þar. Hann bætti Íslandsmet sitt í snörun þegar hann snaraði 135 kílóum. Hann lyfti svo 158 kílóum í jafnhendingu og lyfti því samanlagt 293 kílóum sem er Íslandsmet í samanlögðu í þyngdarflokknum. Bergur var

Íþróttir
Kristján Flóki yfirgefur FH (Staðfest)
Fotbolti.net·

Kristján Flóki yfirgefur FH (Staðfest)

Kristján Flóki Finnbogason er að yfirgefa FH en samningur hans við félagið er að renna út og hann mun ekki fá nýjan samning í Kaplakrika. FH þakkar honum fyrir samstarfið í gegnum árin og óskar honum alls hins besta í framtíðinni. Flóki er framherji sem fæddur er árið 1995. Hann er uppalinn hjá FH og sneri aftur í Kaplakrika sumarið 2024 þegar FH og KR skiptu á leikmönnum.

Íþróttir
Ten Hag: United getur fallið
Fotbolti.net·

Ten Hag: United getur fallið

Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, er í miklum ham þessa dagana og tjáir sig mikið um sitt fyrrum félag. Hann segir að það sé klárlega möguleiki á því að liðið falli úr úrvalsdeildinni. United er einungis markatölunni frá fallsæti og hefur einungis unnið tvo leiki í öllum keppnum á tímabilinu. Eini deildarsigurinn kom gegn Ipswich 30. ágúst.

Íþróttir
Sveindís best í glæsilegum sigri
Fotbolti.net·

Sveindís best í glæsilegum sigri

Sveindís Jane Jónsdóttir átti frábæran leik í 4-1 sigri Angel City gegn Boston Legacy í bandarísku NWSL deildinni í nótt. Boston skapaði fleiri færi í fyrri hálfleik og hélt betur í boltann en staðan var 1-1 að loknum 45 mínútum.

Íþróttir
Grealish djammaði tvo daga í röð
Fotbolti.net·

Grealish djammaði tvo daga í röð

Það bárust fréttir af því í síðustu viku að Everton hafi sett Jack Grealish í agabann fyrir leik liðsins gegn Newcastle í deildabikarnum. Hann er þekktur fyrir að hafa mjög gaman að lífinu og hefur oft komist í fréttirnar fyrir djamm og drykkju.

Íþróttir
Aron vorkennir Bruno Fernandes - „Best að hann fari"
Fotbolti.net·

Aron vorkennir Bruno Fernandes - „Best að hann fari"

Aron Jóhannsson, sérfræðingur í Sunnudagsmessunni á SÝN Sport og stuðningsmaður Man Utd, telur að það væri best fyrir Bruno Fernandes að hann yfirgefi félagið. Aron talaði um það í Sunnudagsmessunni í gær að Fernandes væri klassa fyrir ofan alla leikmenn í liðinu og það væri því ekki nógu góð tengsl milli hans og annarra á velliinum.

Íþróttir
Fjórir leikir á dagskrá í Bónus deild kvenna
Karfan.is·

Fjórir leikir á dagskrá í Bónus deild kvenna

Fjölbreytt dagskrá er fram undan í Bónus deild kvenna þar sem fjórir leikir fara fram í kvöld. Stjarnan getur jafnað topplið Grindavíkur að stigum með heimasigri á Fjölni klukkan 18:30, en klukkan 19:15 hefjast svo þrír leikir samtímis: Ármann tekur á móti Haukum, KR fær Tindastól í heimsókn í Vesturbæinn og Valur mætir Keflavík að […] The post Fjórir leikir á dagskrá í Bónus deild kvenna appeared

Íþróttir
Hugurinn kominn á réttan stað og nú er allt að smella
RÚV·

Hugurinn kominn á réttan stað og nú er allt að smella

Andrea Kolbeinsdóttir hefur gert það gott á hlaupabrautinni undanfarið. Um síðustu helgi vann hún eitt af stærri utanvegahlaupum heims í Suður-Kóreu. Andrea er nýlega orðin atvinnuhlaupari og sigurinn vitanlega stórt skref á hennar ferli. Þetta var lokakeppni ársins í Golden Trail World Series sem er með stærri hlaupaseríum í heimi. Andrea segir sigurinn hafa verið óvæntan. „Það er svona fyndið að

Íþróttir
Messi allt í öllu í mikilvægum sigri
Fotbolti.net·

Messi allt í öllu í mikilvægum sigri

Næst síðasta umferðin í deildarkeppni MLS deildarinnar fór fram í nótt. Lionel Messi var í aðalhutverki í 2-1 sigri Inter Miami á New England Revolution. New England komst yfir snemma í seinni hálfleik en German Berterame jafnaði metin fyrir Inter Miami þegar hann skoraði með skoti úr teignum eftir að Messi skallaði boltann aftur fyrir sig.

Íþróttir
Flick skákaði Guardiola
Fotbolti.net·

Flick skákaði Guardiola

Barcelona rúllaði yfir Alaves 6-1 í spænsku deildinni um helgina. Þetta var 100. sigur liðsins undir stjórn Hansi Flick en þetta var 131. leikur liðsins undir hans stjórn.

Íþróttir
Ítalía í dag - Atalanta á heimavelli
Fotbolti.net·

Ítalía í dag - Atalanta á heimavelli

Tveir síðustu leikirnir í 10. umferð ítölsku deildarinnar fara fram í kvöld. Fyrri leikurinn er viðureign Sassuolo og Fiorentina. Fiorentina er fyrir ofan fallsæti á markatölu en getur jafnað Sassuolo að stigum. Parma er fyrir neðan Fiorentina en liðið heimsækir Atalanta sem er ekki langt undan. Atalanta er í 13. sæti, sex stigum fyrir ofan Parma og Fiorentina.

Íþróttir
20 milljóna dollara barnið: Madonna vildi borga Rodman formúgu fyrir þungun
Karfan.is·

20 milljóna dollara barnið: Madonna vildi borga Rodman formúgu fyrir þungun

Meðal allra lygilegustu sagna úr litríku lífi körfuknattleikskappans Dennis Rodman er meint tilboð poppdrottningarinnar Madonnu, sem á að hafa boðið honum 20 milljónir Bandaríkjadala ef henni tækist að eignast barn með honum. Rodman gerði sjálfur grein fyrir þessu ótrúlega tilboði bæði í sjálfsævisögu sinni og í viðtölum síðar meir, þar sem hann fór yfir það […] The post 20 milljóna dollara barnið

Íþróttir

Í gær

Öflugur Tryggvi Snær tryggði dýrmætan útisigur í Katalóníu
Karfan.is·

Öflugur Tryggvi Snær tryggði dýrmætan útisigur í Katalóníu

Bilbao situr sem fastast í 5. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir sex umferðir í kjölfar mikilvægs 81–78 útisigurs á Joventut Badalona í dag. Spennan var í hámarki allan leikinn og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokasekúndunum. Tryggvi Snær Hlinason fór mikinn undir körfunni og lék stórt hlutverk. Miðherjinn öflugi spilaði í 25 […] The post Öflugur Tryggvi Snær tryggði dýrmætan úti

Íþróttir
Spánn: Tap hjá Orra í Baskalandsslagnum
Fotbolti.net·

Spánn: Tap hjá Orra í Baskalandsslagnum

Atletic Bilbao vann Real Sociedad í Baskalandsslagnum í spænsku deildinni í kvöld. Inaki Williams kom Athletic yfir eftir laglega sendingu yfir vörnina frá bróður sínum Nico Williams. Luka Sucic jafnaði metin með skoti fyrir utan teiginn. Alejandro Berenguer tryggði Athletic sigurinn með marki úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Orri Steinn Óskarsson kom inn á sem varamaður hjá Sociedad eftir um klukkutíma leik. Hann fékk tækifæri undir lokin en Unai Simon í marki Athletic náði að trufla hann og hann náði ekki að stýra skallanum á markið. Þá vann Valencia sterkan sigur á Elche í fallbaráttunni.

Íþróttir
Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan
Karfan.is·

Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum og brottrekstrarvofan

Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið, en að þessu sinni mæta Höggið Heiðar Snær og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fara yfir allan heitasta hitann í íslenska körfuboltanum. Farið er ítarlega yfir stöðu liðanna í Bónusdeild karla eftir síðustu umferð og rýnt í hverjir áttu góða viku og hverjir […] The post Aukasendingin: Slagsmál í Síkinu, sviptingar á styrkleikalistanum

Íþróttir
Þór Þorlákshöfn burstaði Breiðablik og jafnaði Selfoss á toppnum
Karfan.is·

Þór Þorlákshöfn burstaði Breiðablik og jafnaði Selfoss á toppnum

Þór Þorlákshöfn sótti öruggan 103–67 stórsigur gegn Breiðabliki í Smáranum í 1. deild kvenna í kvöld. Gestirnir tóku öll völd eftir jafnan fyrsta leikhluta (23–25) og byggðu forskot sitt jafnt og þétt upp það sem eftir lifði leiks. Með sigrinum komst Þór í 8 stig og jafnaði nágranna sína á Selfossi á toppi deildarinnar. Shawnteanna […] The post Þór Þorlákshöfn burstaði Breiðablik og jafnaði Selfos

Íþróttir
Ítalinn heimsmeistari í fyrsta sinn
mbl.is·

Ítalinn heimsmeistari í fyrsta sinn

Hinn tvítugi Ítali Kimi Antonelli tryggði sér heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 með því að hafna í 3. sæti í Mexíkó-kappakstrinum í kvöld. Antonelli er yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1.

Íþróttir
Tæplega 200 keppendur á Selfossi
mbl.is·

Tæplega 200 keppendur á Selfossi

Tæplega 200 keppendur tóku þátt í Íslandsmótinu ÍF í Boccia á Selfossi um helgina en leikið var í dag og í gær en mótið var haldið af íþróttafélaginu Suðra.

Íþróttir
Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir
Fotbolti.net·

Enski boltinn - Leiðinlegir en svo drullugóðir

Það var nóg að ræða eftir níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Það má segja að það hafi verið þrír stórleikir í umferðinni, sá síðasti í kvöld þegar Liverpool tók á móti Arsenal á Anfield. Arsenal-menn unnu þann leik og eru í hrikalega góðum málum. Manchester United er hins vegar ekki í góðum málum og eru bara fyrir ofan fallsvæðið á markatölu. Michael Carrick heldur sér samt í starfi. Brighton heldur þá áfram að koma á óvart á meðan Manchester City hefur tapað tveimur í röð. Rætt var um þetta og margt fleira í þætti kvöldsins. Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Magnús Atlason úr unglingastarfi Fótbolta.net fóru yfir málin í Coke stúdíóinu.

Íþróttir
Ítalía: Lazio með endurkomusigur - Mikael spilaði í þriðja sigrinum í röð
Fotbolti.net·

Ítalía: Lazio með endurkomusigur - Mikael spilaði í þriðja sigrinum í röð

Lazio er komið með þriggja stiga forystu á toppnum í ítölsku deildinni eftir endurkomusigur á Cagliari í dag. Liðið lenti undir en Gustav Isaksen jafnaði metin fyrir lok fyrri hálfleiks. Andrea Pinamonti tryggði liðinu síðan sigur undir lokin. Albert Guðmundsson er á mála hjá Lazio en er á meiðslalistanum framyfir landsleikjahlé.

Íþróttir
Yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1
RÚV·

Yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1

Kimi Antonelli varð í kvöld yngsti heimsmeistarinn í sögu Formúlu 1-kappakstursins. Hann er einungis 20 ára og keyrir fyrir Mercedes. Ljóst var fyrir keppnina að Antonelli þyrfti aðeins tvö stig til að verða heimsmeistari, sem sagt lenda í níunda sæti eða ofar. Hann fór létt með það því hann endaði þriðji og fagnaði sínum fyrsta heimsmeistaratitli þrátt fyrir að fjórar keppnir væru eftir af tímabi

Íþróttir
Arteta: Stoltur af frammistöðunni
mbl.is·

Arteta: Stoltur af frammistöðunni

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var afar ánægður með sigur liðsins á Liverpool á Anfield og sagði sigurinn sérstaklega ánægjulegan í ljósi þess hversu langt væri síðan Arsenal hefði síðast unnið þar.

Íþróttir
Trent nýtti tækifærið og fékk hrós frá Mourinho
Fotbolti.net·

Trent nýtti tækifærið og fékk hrós frá Mourinho

Trent Alexander-Arnold fékk tækifæri í byrjunarliði Real Madrid í 3-0 sigri á Racing Santander í dag og Jose Mourinho var mjög ánægður með frammistöðuna hans. Mourinho hefur kosið að nota miðjumanninn Federico Valverde í bakverðinum á kostnað Trent og Denzel Dumfries en Trent hafði aðeins spilað eina mínútu í síðustu fjórum leikjum fyrir leik dagsins.

Íþróttir
Hinrik og Breki á skotskónum - Óttar Magnús með tvennu
Fotbolti.net·

Hinrik og Breki á skotskónum - Óttar Magnús með tvennu

Júlíus Magnússon var á skotskónum þegar Elfsborg vann 2-1 sigur á Örgryte í efstu deild í Svíþjóð. Hann jafnaði metin á 65. mínútu en Ari Sigurpálsson var tekinn af velli í kjölfarið. Kolbeinn Þórðarson kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik og var tekinn af velli á 69. mínútu í 1-0 tapi Gautaborgar gegn Hacken. Elfsborg er í 5. sæti með 46 stig eftir 27 umferðir en Gautaborg er í 9. sæti með 38 stig.

Íþróttir
Valur kynnir teymið í kringum Dóra Árna
Fotbolti.net·

Valur kynnir teymið í kringum Dóra Árna

Halldór Árnason hóf formlega störf sem þjálfari Vals í dag en félagið kynnti teymið í kringum hann. Oliver Sigurjónsson er aðstoðarþjálfari en Oliver var leikmaður Breiðabliks þegar Halldór var aðstoðarþjálfari og síðar þjálfari. Þeir urðu Íslandsmeistarar saman 2022 og 2024. Oliver lagði skóna á hilluna í fyrra og var þjálfari Augnabliks.

Íþróttir
Einkunnir Liverpool og Arsenal: Rice bestur - Alisson fær falleinkunn
Fotbolti.net·

Einkunnir Liverpool og Arsenal: Rice bestur - Alisson fær falleinkunn

BBC gaf leikmönnum Liverpool og Arsenal einkunn fyrir frammistöðu sína í 1-0 sigri Arsenal í kvöld. Declan Rice var maður leiksins en hann lagði upp markið á Kai Havertz og færði Arsenalliðinu mikla orku. Rice fær átta í einkunn eins og þrír aðrir leikmenn liðsins. Havetz fær sjö. Alisson fær falleinkunn fyrir sína frammistöðu en hann átti slæma sendingu í aðdraganda marksins. Bradley Barcola var líflegur í liði Liverpool og fær sjö í einkunn.

Íþróttir
Semur við Garðbæinga
mbl.is·

Semur við Garðbæinga

Stjarnan hefur samið við framherjann Bergvin Fannar Helgason um að leik með liðinu í Bestu deild karla í fótbolta en hann kemur til liðsins frá ÍR.

Íþróttir
Gabby Williams tryggði sögulegan titil: Golden State Valkyries WNBA-meistarar á öðru ári sínu
Karfan.is·

Gabby Williams tryggði sögulegan titil: Golden State Valkyries WNBA-meistarar á öðru ári sínu

Ótrúlegri úrslitarimmu WNBA-deildarinnar lauk í nótt þegar nýliðarnir í Golden State Valkyries tryggðu sér sinn fyrsta meistaratitil með 68–63 sigri gegn Atlanta Dream í sögulegum sjöunda leik fyrir framan 18.000 áhorfendur. Þetta er aðeins annað tímabil félagsins í deildinni og hefur ekkert lið í sögu WNBA farið jafn hratt á toppinn. Hetja leiksins og mikilvægasti […] The post Gabby Williams tryg

Íþróttir
Öruggt hjá Þórskonum í Smáranum
Sunnlenska·

Öruggt hjá Þórskonum í Smáranum

Þór Þorlákshöfn vann stórsigur á Breiðabliki í 1. deild kvenna í körfubolta þegar liðin mættust í Smáranum í Kópavogi í dag. Lokatölur urðu 67-103. Leikurinn var jafn í 1. leikhluta en eftir það tóku Þórsarar völdin og stungu af. Staðan í hálfleik var 41-54. Munurinn jókst jafnt og þétt allan seinni hálfleikinn og að lokum […]

ÍþróttirSuðurland
Túfa og Niko kynntir hjá KA í vikunni?
Fotbolti.net·

Túfa og Niko kynntir hjá KA í vikunni?

KA er stórhuga fyrir baráttuna í Lengjudeildinni næsta sumar en Fótbolti.net hefur fengið ábendingar um að það sé frágengið að Srdjan Tufegdzic, Túfa, taki við sem þjálfari liðsins og Nikolaj Hansen verði leikmaður þess.

Íþróttir
Bilið breikkar á botninum
Sunnlenska·

Bilið breikkar á botninum

Selfyssingar sitja kirfilega fastir við botninn á úrvalsdeild karla í handbolta eftir stórt tap í uppgjöri tveggja neðstu liðanna í kvöld. Selfoss mætti HK á útivelli og tapaði 34-22. Selfoss byrjaði betur í kvöld, skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins og komst í 2-6. Þá komu fimm mörk í röð frá HK sem hélt forystunni allt […]

ÍþróttirSuðurland
Víkingur vann stórsigur á Fram
RÚV·

Víkingur vann stórsigur á Fram

Fram tók á móti Víkingi í níundu umferð Olísdeildar karla í handbolta í dag. Jafnræði var með liðunum og þau skiptust á markaskorun fyrstu mínúturnar. Jafnt var í stöðunni 7-7 en Jón Karl Einarsson skoraði á 13. mínútu og kom Víkingum tveimur mörkum yfir, 7-9. Allt varð jafnt á ný og Framarar leiddu með einu marki í hálfleik, 17-16. Fram var skrefi framar í upphafi síðari hálfleiks en Elvar Otri H

Íþróttir
Arsenal á toppinn eftir fyrsta sigurinn á Anfield í 14 ár
RÚV·
Sama málið · 3 miðlar

Arsenal á toppinn eftir fyrsta sigurinn á Anfield í 14 ár

Arsenal hefur sjaldan sótt gull í greipar Liverpool á Anfield Road á undanförnum árum því 14 ár eru liðin síðan Arsenal vann síðast þar. Englandsmeistarar Arsenal byrjuðu af krafti og Kai Havertz skoraði fyrsta mark leiksins á 16. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks, 1-0. Leikurinn var fremur tíðindalítill í síðari hálfleik en Liverpool leitaði að jöfnunarmarki. Alisson Becker bjargað

Íþróttir
Spánn: Mbappe og Diomande óstöðvandi
Fotbolti.net·

Spánn: Mbappe og Diomande óstöðvandi

Real Madrid vann öruggan sigur á Racing Santander í spænsku deildinni í dag. Kylian Mbappe kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu. Hann hefur verið sjóðandi heitur og skorað 16 mörk í 15 leikjum. Jude Bellingham bætti öðru markinu við þegar hann komst í gegn og lék á markvörðinn og skoraði í opið markið. Þetta var 50. mark hans í treyju Real Madrid.

Íþróttir
FH upp í þriðja sæti Olísdeildarinnar eftir kaflaskiptan leik
RÚV·

FH upp í þriðja sæti Olísdeildarinnar eftir kaflaskiptan leik

Þór tók á móti FH í níundu umferð Olísdeildar karla í handbolta í dag. FH-ingar sýndu yfirburði fyrstu mínúturnar en Þórsurum tókst að færa spennu í leikinn. Það voru þó Hafnfirðingar sem lönduðu sigri, 30-37. Ómar Darri Sigurgeirsson kom FH átta mörkum yfir eftir 20 mínútna leik, 5-13. Þór gerði vel næstu mínúturnar og William Skovager minnkaði muninn í tvö mörk á 27. mínútu, 13-15. FH leiddi þó

Íþróttir
Valkyrjurnar unnu sögulegan sigur og eru NBA meistarar
RÚV·

Valkyrjurnar unnu sögulegan sigur og eru NBA meistarar

Golden State Valkyries og Atlanta Dream mættust í oddaleik í úrslitaeinvíginu um NBA-meistaratitil kvenna í körfubolta í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem úrslitaeinvígi kvenna fer í oddaleik. Atlanta hafði komist 2-1 yfir í einvíginu eftir fyrstu þrjá leikina en því svaraði Golden State með tveimur sigurleikjum í röð. Atlanta vann sjötta leikinn og því þurfti oddaleik. Jafnræði var meðal liðanna í

Íþróttir