Sama málið
United búið að reka Carrick
2 miðlar fjalla um málið · Íþróttir · Landið allt
Síðast uppfært:
Samantekt
Samantekt unnin með AIMichael Carrick hefur verið rekinn sem þjálfari Manchester United, samkvæmt fréttum frá DV og Fotbolti.net. DV segir að brottreksturinn hafi komið vegna slaks gengis liðsins, sem sé í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar og hafi aðeins unnið einn af fyrstu tíu deildarleikjum tímabilsins, en Fotbolti.net bætir við að félagið eigi enn eftir að staðfesta tíðindin. Þar segir einnig að Mauricio Pochettino, þjálfari bandaríska landsliðsins, sé sagður hafa munnlegt samkomulag um að taka við liðinu.
2 miðlar fjalla um málið · Samantekt uppfærð 12. nóv. · 10:01
Tímalína
- DV
- Fotbolti.net
Heimildir
DVUnited búið að reka Carrick
Manchester United er búið að reka Michael Carrick úr starfi samkvæmt Fabrizio Romano.Carrick hefur verið undir gríðarlegri pressu vegna slæms gengis liðsins sem er í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. United hefur aðeins unnið einn af fyrstu tíu deildarleikjum tímabilsins.
Lesa frétt hjá DV →
Fotbolti.netBúið að reka Carrick
Michael Carrick hefur verið rekinn sem þjálfari Manchester United. Brottreksturinn hefur legið í loftinu síðustu daga en félagið á enn eftir að staðfesta tíðindin. Blaðamennirnir Andy Mitten og Fabrizio Romano greina frá uppsögninni. Mauricio Pochettino, þjálfari bandaríska landsliðsins, er sagður vera kominn með munnlegt samkomulag um að taka við liðinu. Carrick var ráðinn sem bráðabirgðaþjálfari liðsins í upphafi árs og náði góðum árangri. Hann endaði með liðið í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð og var verðlaunaður með stjórasætinu til frambúðar. Gengi liðsins á yfirstandandi tímabili hefur verið langt undir væntingum og situr United nú í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið hefur aðeins unnið þrjá sigra í fimmtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Lesa frétt hjá Fotbolti.net →
