Sama málið
Bo Johansson er látinn
3 miðlar fjalla um málið · Íþróttir · Landið allt
Síðast uppfært:
Samantekt
Samantekt unnin með AIBo Johansson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, er látinn, 83 ára að aldri. Hann var sænskur og þjálfaði íslenska karlalandsliðið frá 1990 til 1991, en einnig danska landsliðið í fjögur ár. RÚV og aðrir miðlar greina frá því að hann hafi einnig átt langan þjálfaraferil í Svíþjóð, meðal annars með Öster IF þar sem hann varð tvisvar sænskur meistari.
3 miðlar fjalla um málið · Samantekt uppfærð 15. okt. · 10:30
Tímalína
- RÚV
- Fotbolti.net
- DV
Heimildir
- RÚV
Bo Johansson látinn
Bo, sem jafnan var kallaður Bosse, fæddist í Kristdala í Svíþjóð í nóvember 1942. Hann lék með Kalmar FF og Lindsdals IF en leikmannsferillinn var tiltölulega litlaus. Hann sneri sér því að þjálfun og tók við Kalmar fyrst. Hann vann til metorða sem þjálfari Öster IF og varð tvisvar sænskur meistari þar og fór svo á flakk um Evrópu og tók líka við Kalmar og Öster til skiptis í þrígang. Eftir að haf
Lesa frétt hjá RÚV →
Fotbolti.netBo Johansson er látinn
Bo Johansson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, er látinn 83 ára að aldri. Svíinn átti langan þjálfaraferil og gerði Öster í tvígang að sænskum meistara, 1980 og 1981. Bosse, eins og hann var kallaður, var landsliðsþjálfari Íslands 1990-1991. Síðasti leikur hans sem með Ísland var gegn Dönum í byrjun september árið 1991. Í viðtali við Íþróttablaðið sagði hann að KSÍ hefði tjáð sér að sambandið vildi ráða ódýrari þjálfara og því ekki boðið honum nýjan samning. Hann hafi ákveðið að hætta áður en undankeppninni lauk til að leita sér að nýju starfi.
Lesa frétt hjá Fotbolti.net →
DVBo Johansson er látinn
Bo Johansson, fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins, er látinn. Hann var 83 ára.Johannsson, sem var sænskur, þjálfaði Ísland frá 1990 til 1991. Hann þjálfaði einnig danska landsliðið í fjögur ár.
Lesa frétt hjá DV →
