Sama málið
Afturelding fær Tibbling frá Fram
3 miðlar fjalla um málið · Íþróttir · Landið allt
Síðast uppfært:
Samantekt
Samantekt unnin með AISimon Tibbling hefur yfirgefið Fram eftir tvö tímabil hjá félaginu í Úlfarsárdal, og Fram staðfesti brottför hans í tilkynningu. Samkvæmt fréttum hefur hann samið við Aftureldingu í Mosfellsbæ til tveggja ára, en félagið vann Lengjudeildina í ár og verður í Bestu deildinni á næsta tímabili. Tibbling, sem er sænskur miðjumaður, kom til Fram fyrir tímabilið 2025 og var valinn í lið ársins það tímabil.
3 miðlar fjalla um málið · Samantekt uppfærð 13. nóv. · 18:00
Tímalína
- Fotbolti.net
- Fotbolti.net
- DV
- mbl.is
Heimildir
Fotbolti.netSimon Tibbling yfirgefur Fram (Staðfest)
Fram greindi frá því rétt í þessu að Simon Tibbling væri búinn að yfirgefa félagið. Hann hefur verið sterklega orðaður við Lengjudeildarmeistarana í Aftureldingu. Tibbling, sem er 32 ára, kom til Fram fyrir tímabilið 2025, átti frábært tímabil og var valinn í lið ársins 2025. Á síðasta tímabili minnkaði hlutverk hans í hlutverkinu, sérstaklega þegar leið á og heyrðist af því að Fram væri tilbúið að hlusta á tilboð í sænska miðjumanninn.
Lesa frétt hjá Fotbolti.net →
Fotbolti.netSimon Tibbling yfirgefur Fram og semur við Aftureldingu (Staðfest)
Simon Tibbling er genginn í raðir Aftureldingar eftir tvö ár hjá Fram. Hann skrifar undir tveggja ára samning í Mosfellsbæ. Afturelding vann Lengjudeildina í ár og verður í Bestu deildinni á næsta tímabili. <i>„Ég er mjög ánægður og stoltur af því að semja við Aftureldingu. Ég hlakka mikið til að takast á við þetta verkefni og get ekki beðið eftir að byrja,"</I> segir Tibbling. Auk þess að spila með Aftureldingu þá mun Simon koma inn í þjálfarateymi 2. flokks karla með Alejandro Zambrano sem er fagnaðarefni fyrir félagið. Afturelding þakkar Fram fyrir fagmannleg og góð vinnubrögð í tengslum við félagaskiptin.
Lesa frétt hjá Fotbolti.net →
DVAfturelding fær Tibbling frá Fram
Afturelding hefur gert tveggja ára samning við sænska miðjumanninn Simon Tibbling en hann kemur til félagsins frá Fram. Simon er mjög reynslumikill leikmaður sem hefur leikið 366 leiki í efstu deildum í Hollandi, Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Íslandi á ferli sínum.
Lesa frétt hjá DV →
mbl.isÚr Fram og í Aftureldingu
Sænski miðjumaðurinn Simon Tibbling hefur yfirgefið knattspyrnufélagið Fram eftir tvö tímabil í Úlfarsárdal. Félagið staðfesti brottför hans í tilkynningu.
Lesa frétt hjá mbl.is →
