Sama málið
KA staðfestir komu Hansen frá Víkingi
2 miðlar fjalla um málið · Íþróttir · Landið allt
Síðast uppfært:
Samantekt
Samantekt unnin með AINikolaj Hansen hefur yfirgefið Víking og samið við KA, samkvæmt fréttum frá 13. nóvember 2026. KA staðfesti að Hansen hefði skrifað undir tveggja ára samning við félagið í dag, en hann hefur verið leikmaður Víkings frá árinu 2017 og er markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 121 mark í 310 leikjum. Hann hefur einnig orðið Íslandsmeistari fjórum sinnum og bikarmeistari fjórum sinnum með Víkingi, og var fyrirliði liðsins á tímabilunum 2023–24.
2 miðlar fjalla um málið · Samantekt uppfærð 13. nóv. · 12:30
Tímalína
- Fotbolti.net
- DV
- Fotbolti.net
Heimildir
Fotbolti.netNiko Hansen kveður Víking (Staðfest)
Nikolaj Hansen hefur yfirgefið Víking en hann hefur verið leikmaður liðsins frá árinu 2017. Hann hefur skorað 121 mark í 310 leikjum fyrir félagið oger markahæsti lekmaður í sögu félagsins. Hann hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari með Víkingi og fjórum sinnum bikarmeistari. Hann var fyrirliði liðsins tímabilin 2023-24. Hann hefur verið sterklega orðaður við KA en önnur félög hafa sett sig í samband við danska framherjann.
Lesa frétt hjá Fotbolti.net →
DVKA staðfestir komu Hansen frá Víkingi
KA hefur staðfest komu danska framherjans Nikolaj Hansen, sem skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Akureyrarfélagið.Hansen, sem er 33 ára, kemur frá Víkingi Reykjavík þar sem hann hefur leikið frá árinu 2017 og verið í lykilhlutverki í velgengni félagsins.
Lesa frétt hjá DV →
Fotbolti.netNiko Hansen kveður Víking og semur við KA (Staðfest)
Nikolaj Hansen hefur yfirgefið Víking en hann hefur verið leikmaður liðsins frá árinu 2017. Í kjölfarið á því tilkynnti KA hann sem nýjan leikmann félagsins, en danski framherjinn hafði verið sterklega orðaður við KA. Niko skrifar undir tveggja ára samning við KA og á að hjálpa liðinu upp úr Lengjudeildinni. <b>Úr tilkynningu KA</b> <i>„Það er gríðarlega stórt að fá Nikolaj norður í gult og blátt og skýr skilaboð um að félagið ætlar sér strax aftur í deild þeirra bestu eftir vonbrigði sumarsins. Það er von okkar að gæði og reynsla Nikolaj muni bæði skila sér inn á vellinum sem og í því verkefni okkar að þróa áfram hina mörgu ungu og efnilegu leikmenn félagsins." „Við bjóðum Nikolaj hjartanlega velkominn í KA og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hans í gula og bláa búningnum. Fyrr í dag tilkynntum við endurkomu Túfa, Srdjan Tufegdzic, og ljóst að það eru afar spennandi tímar framundan á brekkunni með komu þeirra tveggja."</I>
Lesa frétt hjá Fotbolti.net →
