Sama málið
Opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg í dag
2 miðlar fjalla um málið · Innlent · Landið allt
Síðast uppfært:
Samantekt
Samantekt unnin með AIÍ dag klukkan 14 verður opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar í Reykjavík. Samkvæmt Vegagerðinni markar opnunin mikilvægan áfanga í framkvæmdunum, sem búist er við að ljúki í kringum mánaðamót nóvember og desember. Enn stendur vinna yfir og vegfarendur eru beðnir að aka með gát, þar sem búast má við einhverjum umferðartöfum.
2 miðlar fjalla um málið · Samantekt uppfærð 5. okt. · 08:00
Tímalína
- RÚV
- mbl.is
Heimildir
- RÚV
Opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg í dag
Í dag klukkan tvö verður opnað fyrir umferð um nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Á vef Vegagerðarinnar segir að opnun vegarins marki mikilvægan áfanga í framkvæmdunum sem búist er við að ljúki í kringum mánaðamót nóvember-desember. Vegagerðin bendir á að vinna standi enn yfir og vegfarendur því beðnir að aka með gát og sýna tillitsemi enda líkur á einhverjum umferðartöfum.
Lesa frétt hjá RÚV →
mbl.isNýr Arnarnesvegur verður opnaður í dag
Opnað verður í dag, mánudag, kl. 14 fyrir umferð um Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar í Reykjavík. Að undanförnu hefur verið unnið að því að tengja nýju vegamannvirkin inn á núverandi akbrautir.
Lesa frétt hjá mbl.is →
