Austurland

Fréttir sem tengjast svæðinu Austurland – bæði frá staðarmiðlum og landsmiðlum.

Fréttatónn

Nýjast

Síðustu 7 dagar

Beiðni um endurskoðun úthlutunar á lóð í Kvíabólsfjöru hafnað
Austurfrétt·

Beiðni um endurskoðun úthlutunar á lóð í Kvíabólsfjöru hafnað

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur hafnað beiðni undirbúningshópsins Bærinn okkar, svokallaðs baðstofuhóps í Neskaupstað, um endurskoðun á úthlutun lóðar í Kvíabólsfjöru. Hópurinn hefur undanfarin ár unnið að undirbúningi og fjármögnun samfélagsaðstöðu fyrir sjósundsfólk og aðra íbúa, en lóðinni hefur nú verið úthlutað öðrum aðila sem hyggst byggja upp sambærilega starfsemi.

InnlentAusturland
„Nú þarf ekki lengur að bíða eftir fólki að sunnan“
Austurfrétt·

„Nú þarf ekki lengur að bíða eftir fólki að sunnan“

Austfirðingar hafa nú formlega eignast sinn eigin straumvatnsbjörgunarhóp en fimm einstaklingar úr Björgunarsveitinni Brimrúnu á Eskifirði luku nýverið fyrstu tveimur stigum í straumvatnsbjörgun sem gerir þá sveitina útkallshæfa nú þegar. Stefnt er að því að ljúka þriðja og síðasta stiginu á næstunni.

InnlentAusturland
Fjarðabyggð hættir rekstri eigin rafhleðslustöðva
Austurfrétt·

Fjarðabyggð hættir rekstri eigin rafhleðslustöðva

Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.

InnlentAusturland