Höfuðborgarsvæðið

Fréttir sem tengjast svæðinu Höfuðborgarsvæðið – bæði frá staðarmiðlum og landsmiðlum.

Fréttatónn

Nýjast

Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði
Vísir·

Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði

Rússar vörpuðu sprengjum á skóla í sunnanverðri Úkraínu í dag, þar sem íbúar bæjar nærri víglínunni höfðu komið saman til að fá mataraðstoð. Í heildina vörpuðu Rússar tíu stórum sprengjum á skólann í nokkrum bylgjum. Að minnsta kosti 26 eru látnir og minnst tuttugu er saknað.

Erlent
Hvar er þyrla Akureyringa?
mbl.is·

Hvar er þyrla Akureyringa?

Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að því á Alþingi í dag hvort íbúar á Norðurlandi mættu búast við þyrlu í sjúkraflutninga í fasta starfsstöð á vegum Landhelgisgæslunnar á Akureyri.

Innlent
Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa
RÚV·

Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hóf að gera athugasemdir við starfshætti stjórnar og fjármálaráðuneytisins í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar af starfi fyrirtækisins óeðlileg og jafnvel ólögleg og óttaðist að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu. Eftir að Hörður Arnarson tilkynnti um afsögn sína sem forstjóri Landsvirkjunar óskaði fréttastofa eftir öllum samskipt

Innlent
Gaman að fá að taka þátt í alvöru Hollywood-verkefni
RÚV·

Gaman að fá að taka þátt í alvöru Hollywood-verkefni

Hafsteinn er maður margra hatta í tónlistarbransanum. Hann vinnur í fullu starfi við tónlistarsköpun og kemur víða við. Á einum degi gæti hann t.d. verið að vinna að útsetningum fyrir tónleika, stýra upptökum á tónlist eða semja kvikmyndatónlist. Verkefnin sem tengjast kvikmyndunum eru fjölbreytt. Hann vann t.d. að tónlistinni í Bridget Jones: Mad About The Boy . „Það var ótrúlega skemmtilegt, við

Menning
Amorim gæti óvænt reynt að kaupa ungan leikmann United
DV·

Amorim gæti óvænt reynt að kaupa ungan leikmann United

Ruben Amorim, stjóri AC Milan, hefur áhuga á að fá Leny Yoro, varnarmann Manchester United, til liðs við sig í janúar.Ítalski miðillinn Calciomercato greinir frá þessu en Amorim þekkir Frakkann vel frá tíma sínum hjá United. Yoro lék stóra rullu undir stjórn Portúgalans.

Íþróttir
Líkir leitinni að Lúðvík við einhvers konar sjónarspil: „Þetta voru gríðarleg vonbrigði“
RÚV·

Líkir leitinni að Lúðvík við einhvers konar sjónarspil: „Þetta voru gríðarleg vonbrigði“

Bróðir manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík í byrjun árs 2024 vill að bæjarstjórn Grindavíkur hafi forgöngu um að lík bróður hans verði grafið upp. Leitin sem ráðist var í í síðustu viku hafi verið fjölskyldunni vonbrigði. „Eins og þetta horfir við okkur, og vert er að taka fram að við fylgjumst með þessu í gegnum fjölmiðla að miklu leyti, þá upplifðu allavega systur mínar og börn Lúlla einhv

Innlent
Breytt vinnu­brögð sköpuðu núning milli for­stjóra og stjórnar
Vísir·

Breytt vinnu­brögð sköpuðu núning milli for­stjóra og stjórnar

Stjórn Landsvirkjunar segir að skoðun óháðra aðila á athugasemdum Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra, um stjórnarhætti hafi leitt í ljós að stjórnin hafi ekki farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir. Þá hafi Herði ekki verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins og stjórnin hafi ekki skipt sér af daglegum rekstri Landsvirkjunar.

Viðskipti
Smáríkið hafði betur
mbl.is·

Smáríkið hafði betur

Atvinnuvegaráðuneytið hefur úrskurðað Smáríkinu í vil og fellt úr gildi skilyrði sem Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness setti vegna útgáfu starfsleyfis til áfengisverslunarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Smáríkinu.

Innlent
Tölvuþrjótar gerðu netárásir á kæli- og frystiskápa verslana í sjö löndum
RÚV·

Tölvuþrjótar gerðu netárásir á kæli- og frystiskápa verslana í sjö löndum

Matvöruverslanir í sjö löndum í Evrópu urðu fyrir netárásum sem höfðu áhrif á kæli- og frystiskápa í dag. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum. Um 40 verslanir Delhaize stórmarkaðskeðjunnar í Belgíu og Lúxemborg urðu fyrir árásum sem og verslanir í Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi, Hollandi og Írlandi. Fyrirtækið Sabcobel, sem rekur kælikerfi Delhaize-verslananna, segir að stillt hafi verið á afþ

Erlent
Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu - margir ráðnir aftur
RÚV·

Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu - margir ráðnir aftur

Á annað hundrað var sagt upp hjá ríkisstofnunum í hópuppsögnum í október, meirihlutinn verður endurráðinn. Atvinnuleysi eykst á næstu mánuðum. Vinnumálastofnun fékk fimm tilkynningar um hópuppsagnir í október, alls náðu þær til 281 starfsmanns. Meirihlutinn er opinberir starfsmenn, en hluti þeirra fær störf sín aftur. „Þetta eru tvær stórar opinberar stofnanir sem verið er að leggja niður og renna

Viðskipti
Raf­magnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“
Vísir·

Raf­magnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“

„Þeir komu í morgun. Tóku rafmagnið, vatnið og allt saman,“ segir Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa. Hún segir að starfsmenn Reykjavíkurborgar hafi tekið rafmagnið af svæðinu þar sem fólk hefur haldið til í hjólhýsabyggð á Sævarhöfða. Bergþóra segir að umrætt fólk sé búið að borga reikninga fyrir bæði rafmagn og vatn fyrir nóvember og einhverjir hafi þegar greitt fyrir desember.

Innlent
Íbúar hjólhýsabyggðar upplifa að þau megi hvergi vera
RÚV·

Íbúar hjólhýsabyggðar upplifa að þau megi hvergi vera

Búið er að loka fyrir rafmagn og vatn í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða í Reykjavík. Þingmenn Flokks fólksins lögðu í dag fram tillögu um varanlega búsetu í færanlegum búsetueiningum. Í tillögunni er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að gera frumvarp sem skapi lagagrundvöll fyrir varanlega búsetu í samþykktum færanlegum búsetueiningum á svæðum sem sveitarfélög hafa sérstaklega skipulagt til s

Innlent
„Við gefumst ekki upp“
mbl.is·

„Við gefumst ekki upp“

Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sprungu í Grindavík í janúar 2024, hyggst beina nýju erindi til bæjarstjórnar Grindavíkur og fara fram á að bærinn hafi forgöngu um að líkamsleifar bróður hans verði sóttar úr sprungunni.

Innlent
Carrick klárar ekki mánuðinn - Getur United fallið?
Fotbolti.net·

Carrick klárar ekki mánuðinn - Getur United fallið?

Michael Carrick er í ansi heitu sæti á Old Trafford, það hvorki gengur né rekur hjá liðinu en síðast vannst deildarleikur í lok ágúst. Manchester United er markatölunni frá falli, leikmenn hauslausir inn á vellinum og eru margir að bíða eftir því að United geri breytingar, og einfaldasta breytingin er að breyta um stjóra. Veðbankar hafa mjög litla trú á því að Carrick lifi af mánuðinn í starfi.

Íþróttir
Heldur starfinu í bili
DV·

Heldur starfinu í bili

Regis Le Bris, knattspyrnustjóri Sunderland, fær meiri tíma til að snúa gengi liðsins við þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu.

Íþróttir
Hringferð Bændasamtakanna hafin
Bændablaðið·

Hringferð Bændasamtakanna hafin

Fyrsti áfangastaður Bændasamtakanna á árlegri hringferð samtakanna var í Félagslundi í Flóahreppi í nágrenni Selfoss og var fundurinn vel sóttur. Trausti Hjálmarsson formaður og Margrét Ágústa Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bændasamtakanna fóru yfir hels ...

Viðskipti
Snorri Másson hjólar í Kristrúnu: „Dökk mynd, segir formaður Samfylkingarinnar“
Nútíminn·

Snorri Másson hjólar í Kristrúnu: „Dökk mynd, segir formaður Samfylkingarinnar“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að í fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, um skipulagða glæpastarfsemi, útlendingamál og fjármögnun löggæslu væri „teiknuð upp býsna dökk mynd“. Hún sagði ekki rétt að ríkisstjórnin hefði gert lítið í málaflokknum og að ekki hefði meira verið gert „í áraraðir“. Orðið heiðursofbeldi kom ekki […

Stjórnmál
Demókratar með forskot í lykilríkjum einum degi fyrir kosningar
RÚV·

Demókratar með forskot í lykilríkjum einum degi fyrir kosningar

Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á morgun. Öll sætin í fulltrúadeildinni eru undir og um þriðjungur í öldungadeildinni. Samkvæmt nýjustu könnunum eru Demókratar með forskot á Repúblikana í nær öllum sjö ríkjunum sem ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild þingsins. Hin margumtalaða bláa alda virðist vera innan seilingar fyrir demókrata en er hægt að taka mark á skoðanakönnunum

Erlent
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Bláa lónsins á Arctic Adventures
RÚV·
Sama málið · 3 miðlar

Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Bláa lónsins á Arctic Adventures

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Bláa lónsins hf. á Arctic Adventures hf. án skilyrða. Gert er ráð fyrir að lokið verði við kaupin á næstu vikum og verður Arctic Adventures hluti af samstæðu Bláa lónsins í lok mánaðar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Forsvarsmenn Bláa lónsins og Arctic skrifuðu undir samkomulag um samruna fyrirtækjanna í júní. Samkomulagið var gert með fyrirvara um á

Innlent
Þorgerður Katrín: Endurtíst á Lavrov „miklu alvarlegra“ en færsla Heimis Más
Nútíminn·

Þorgerður Katrín: Endurtíst á Lavrov „miklu alvarlegra“ en færsla Heimis Más

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði á Alþingi í dag að það væri „miklu alvarlegra“ að „fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda“ hefði endurtíst færslu um Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, en að Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins, hefði skrifað færslu um kjarnorkuvopn. Hún nefndi engan á nafn. RÚV telur hana „líkast til“ eiga við færslu

Innlent
United með vinstri bakvörð í sigtinu fyrir janúargluggann
DV·

United með vinstri bakvörð í sigtinu fyrir janúargluggann

Alejandro Balde, vinstri bakvörður Barcelona, gæti yfirgefið félagið í janúarglugganum og Manchester United er sagt fylgjast grannt með stöðu hans.Samkvæmt portúgalska miðlinum Record, sem vísar í Marca, er Barcelona að skoða breytingar á varnarlínu sinni og gæti Balde verið á förum.

Íþróttir
Segir fjölskylduna vera í nöp við sig
mbl.is·

Segir fjölskylduna vera í nöp við sig

Íris Helga Jónatansdóttir segir áralanga heift fjölskyldu í hennar garð valdi því að hún sé vænd um þá hluti sem hún sætir ákæru fyrir en samskipti kjarnafjölskyldu konu nokkurrar við Írisi voru tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Innlent
Dregið úr innlögnum á Vog meðan nýir læknar setja sig inn í aðstæður
RÚV·

Dregið úr innlögnum á Vog meðan nýir læknar setja sig inn í aðstæður

Nokkuð hefur verið dregið úr innlögnum sjúklinga á Vog tímabundið vegna þess að færri læknar en vanalega eru við störf. Nýir læknar eru væntanlegir, segir Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir forstjóri í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu. Hún segir að faglegra og öruggara sé talið að sinna færri á meðan nýir læknar eru að koma til starfa. Þeir þurfi tíma til að setja sig inn í aðstæður, verklag og

Innlent
Rúnar Kristins: Skrítið að þeir hafi ekki fengið meiri athygli
Fotbolti.net·

Rúnar Kristins: Skrítið að þeir hafi ekki fengið meiri athygli

Tveir ungir leikmenn voru í stóru hlutverki hjá Fram í Bestu deildinni í sumar. Freyr Sigurðsson (2005) átti mjög gott tímabil inn á miðjunni og Þorri Stefán Þorbjörnsson (2006) var í varnarlínunni. Þorri hefur verið orðaður við atvinnumennsku en til þessa hefur lítið heyrst af þeim möguleika hjá Frey. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var spurður hvort þessir tveir ungu menn gætu farið út í atvinnumennsku í vetur.

Íþróttir
Málverk af Pollinum reyndist of dýrt fyrir bæjarsjóð
RÚV·

Málverk af Pollinum reyndist of dýrt fyrir bæjarsjóð

Gylfa Ólafssyni, bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, tókst ekki að tryggja bænum málverk af Pollinum eftir danska málarann Christian Blache á uppboði danska uppboðshússins Bruun Rasmussen á dögunum. Ástæðan var sú að verkið var selt fyrir margfalt matsverð. Í dagbók bæjarstjóra , sem Gylfi heldur úti á vef Ísafjarðarbæjar, segir hann frá því að honum hafi borist ábending um verkið frá „manni útí bæ“. Í f

Menning
„Þetta er ekki spurning um að finna hann heldur um að sækja hann“
RÚV·
Sama málið · 2 miðlar

„Þetta er ekki spurning um að finna hann heldur um að sækja hann“

Elías Pétursson ætlar að leggja til við bæjarstjórn Grindavíkur að líkamsleifar Lúðvíks bróður hans verði grafnar upp úr sprungunni sem hann féll niður í janúar 2024. Hann vann við að fylla í sprunguna þegar hann hvarf. Elías kveðst í færslu á Facebook hafa snemma sagt öruggara að grafa niður að sprungunni frá hlið og þaðan að þeim stað þar sem líklegast er að Lúðvík liggi. Ekki verið ráðist í nið

Innlent
Hafi ráðist á sam­býlis­konu sína á Tenerife
Vísir·

Hafi ráðist á sam­býlis­konu sína á Tenerife

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot í nánu sambandi með því að hafa á endurtekinn hátt ógnað lífi, heilsu og velferð barnsmóður sinnar og þáverandi og síðar fyrrverandi sambýliskonu árið 2024. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa ráðist á konuna á hótelherbergi á Tenerife, sent henni ærumeiðandi skilaboð um ætlað framhjáhald hennar og að hafa stolið öllum dekkjum undan bíl hennar.

Samfélag
„Takk fyrir vin­skapinn, elsku Lárus“
Vísir·

„Takk fyrir vin­skapinn, elsku Lárus“

Lárus M.K. Ólafsson hefur ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, eftir tæplega tveggja ára starf. Þeir kveðja hvor annan með söknuði.

Stjórnmál
Sé ekki spurning um að finna Lúð­vík heldur sækja hann
Vísir·
Sama málið · 2 miðlar

Sé ekki spurning um að finna Lúð­vík heldur sækja hann

Bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll niður um jarðfall í Grindavík árið 2024, segir ákvörðunina um að hætta að leita að líkamsleifum Lúðvíks vonbrigði og að hún kalli á svör. Hann hafi sjálfur lagt til lausnir en þær hafi ekki verið teknar til greina. Hann, fyrir hönd fjölskyldunnar, muni beina erindi að nýju til bæjarstjórnar Grindavíkur.

Innlent
Stóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
Veitingageirinn·

Stóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag

Stórsýningin STÓRELDHÚSIÐ 2026 opnar núna á fimmtudag kl. 12.00 í Laugardalshöllinni og er sýningin opin til kl. 18.00. Sami opnunartími er á föstudag 6. nóv. Sýningin hefur stækkað og er afar fjölbreytt og áhugaverð. Er von á að gestir njóti glæsilegra bása og áhugaverðra nýjunga. Á sýningunni í ár kynna birgjar nýjungar í mat og […]

Viðskipti
Emil: Stormur og svart ský yfir Stjörnunni
Fotbolti.net·

Emil: Stormur og svart ský yfir Stjörnunni

Tímabilið hjá Stjörnunni gekk alls ekki eins og smurt. Stjarnan þurfti tvisvar að gera þjálfarabreytingar, endaði tímabilið með þriggja þjálfara teymi til bráðabirgða og skömmu fyrir lok tímabilsins var tilkynnt að Rúnar Páll Sigmundsson tæki við liðinu eftir tímabilið. Emil Atlason hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin tímabil. Emil er reynslumikill framherji sem var markahæsti leikmaður deildarinnar 2023. Emil ræddi við Fótbolta.net og var spurður út í tímabilið í ár.

Íþróttir
Bankaeigandi handtekinn grunaður um að hafa tekið 430 milljónir dala úr hirslum
Mannlíf·

Bankaeigandi handtekinn grunaður um að hafa tekið 430 milljónir dala úr hirslum

Eigandi serbneska bankans Alta Bank var handtekinn á mánudag, grunaður um að hafa tekið hundruð milljóna evra með ólögmætum hætti úr hirslum bankans. Leyfi bankans hafði áður verið afturkallað vegna ótta um fjárhagsstöðu hans og mögulegt fall. Davor Macura, eigandi Alta Bank, er grunaður um að hafa tekið um 45 milljarða serbneskra dínara úr hirslum bankans og þannig aflað sér...

Erlent
Hafa áhyggjur af jafnréttisfræðslu stærðfræðikennara
Nútíminn·

Hafa áhyggjur af jafnréttisfræðslu stærðfræðikennara

Höfundar nýrrar ritrýndrar greinar í Netlu telja áhyggjuefni að jafnréttismenntun sé ekki í hávegum höfð í stærðfræðikennslu á unglingastigi og að kennara skorti fræðslu um tengsl kyns og menntunar. Þeir líta á vandann sem kerfislægan og rekja hann til ófullnægjandi fræðslu fremur en einstakra kennara. Meirihluti kennaranna í rannsókninni taldi jafnréttismenntun ekki eiga við í […] Greinin Hafa áh

Samfélag
„Ég er í svo miklum hefndarhug að ég á erfitt með mig“
RÚV·

„Ég er í svo miklum hefndarhug að ég á erfitt með mig“

Íris Helga Jónatansdóttir segist ekki hafa hvatt mann til þess að ata skít á heimili eins mannanna sem sakað hafa hana um umsáturseinelti. Hún er ásökuð um að hafa beitt mennina umfangsmiklu umsáturseinelti á árunum 2022 til 2025. Aðalmeðferð í máli hennar hófst í dag og stendur fram í næstu viku. Krafa gerð um frávísun Einn maður er meðákærður í málinu og er honum gefið að sök að hafa aðstoðað Ír

Innlent
ON og Thor semja um aukna raforku
mbl.is·

ON og Thor semja um aukna raforku

Orka náttúrunnar (ON) og Thor landeldi í Ölfusi hafa komið sér saman um aukningu á samningsbundinni raforku til eldisins úr 5 MW í 10 MW. Þá hefur verið undirrituð viljayfirlýsing um frekari raforku til framtíðar.

Viðskipti
„Þetta er bara eitthvað svona skrýtið sem manni fer að þykja vænt um“
RÚV·

„Þetta er bara eitthvað svona skrýtið sem manni fer að þykja vænt um“

Grafíska hönnuðinum Mána Sigurðssyni, sem hefur búið öll sín fullorðinsár í miðborginni, og kærustunni hans var brugðið þegar þau tóku eftir að teikningar af bílum með fallega mannlega ásjónu í gluggum bílastæðahúss við Vitatorg voru nánast allar á bak og burt fyrir fáeinum dögum, án samráðs við íbúa. Parið býr í næsta nágrenni við bílastæðahúsið og ákvað að setja undirskriftarsöfnun í gang til va

Innlent
Matthías neitaði að hafa skallað lögreglumann en búkmyndavélin sagði annað
Mannlíf·

Matthías neitaði að hafa skallað lögreglumann en búkmyndavélin sagði annað

Matthías Daði Guðbjartsson hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni eftir að hafa skallað lögreglumann í höfuðið í Reykjanesbæ. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag, 2. nóvember. Atvikið átti sér stað aðfaranótt 16. ágúst 2025 fyrir utan skemmtistað í Reykjanesbæ. Lögregla hafði afskipti af Matthíasi eftir að dyraverðir óskuðu eftir aðstoð vegna framk

Samfélag
Rúður brotnar í nærri þrjátíu bílum á Seltjarnarnesi í nótt
Nútíminn·
Sama málið · 2 miðlar

Rúður brotnar í nærri þrjátíu bílum á Seltjarnarnesi í nótt

Rúður voru brotnar í nærri þrjátíu kyrrstæðum bílum á Seltjarnarnesi í nótt. Bílarnir stóðu í bifreiðastæðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður þau sem geta veitt upplýsingar um málið að hafa samband í síma 444 1000. Lögreglunni bárust tilkynningar um skemmdarverkin í dag. Í tilkynningu hennar segir að þar hafi verið á […] Greinin Rúður brotnar í nærri þr

Innlent
Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun al­var­legra
Vísir·

Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun al­var­legra

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins krafðist svara frá utanríkisráðherra á Alþingi í dag vegna ummæla framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðherra sagði færslu fyrrverandi forseta alvarlegri.

Stjórnmál
Yfirferðin með Elízu Gígju: Rán um hábjartan dag í London
Fotbolti.net·

Yfirferðin með Elízu Gígju: Rán um hábjartan dag í London

<p>Toppslagur umferðarinnar í enska boltanum fór fram í höfuðborginni þegar London City Lionesses tóku á móti ríkjandi meisturum Manchester City. Heimakonur voru með ótrúlega yfirburði í fyrri hálfleiknum en náðu ekki að nýta það og staðan var 0-0 í hálfleik. Það var svo Bunny Shaw sem kom gestunum yfir snemma í seinni hálfleik þegar hún slapp ein í gegn eftir sendingu frá Lauren Hemp. Shaw sýndi svo góða takta þegar hún skoraði í opið markið eftir að hafa komist fram hjá Mary Earps, sem stóð á milli stanganna í sínum fyrsta deildarleik fyrir London City. </p>

Íþróttir
Milner hljóp New York maraþonið
Fotbolti.net·

Milner hljóp New York maraþonið

James Milner tók þátt í sínu fyrsta maraþoni um helgina en hann hljóp hið vinsæla New York maraþon. Milner, sem er 40 ára, er búinn að leggja fótboltaskóna á hilluna og hefur tekið fram hlaupaskóna. Hann hljóp maraþonið á glæsilegum tíma; þremur klukkustundum, níu mínútum og fjórum sekúndum. Milner hljóp til styrktar góðu málefni og notaði gervigreind til að búa til æfingaprógramm áður en hann tók þátt í hlaupinu. Milner varð enskur meistari með Manchester City og Liverpool á ferli sínum, auk þess að hann vann Meistaradeildina með síðarnefnda félaginu. Síðustu ár ferils síns lék hann með Brighton.

Íþróttir
Þór/KA heyrir sögunni til í fótboltanum
RÚV·

Þór/KA heyrir sögunni til í fótboltanum

Akureyrarfélögin Þór og KA hafa nú slitið samstarfi sínu um sameiginlegan meistaraflokk kvenna í fótbolta eftir áratugalangt samstarf. Keppt var undir merkjum Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) á árunum 1993-1998 en Akureyrarliðið lék svo undir nafninu Þór/KA árin 1999 og 2000. Ári seinna kom svo Knattspyrnufélag Siglufjarðar (KS) inn í samstarfið og Þór/KA/KS spilaði í Íslandsmóti kvenna á árunum 2

Íþróttir
Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart
Fotbolti.net·

Framkvæmdastjóri Þórs: Ákvörðun KA kom á óvart

KA gaf út tilkynningu í dag þess efnis að félagið ætlaði sér ekki að endurnýja samstarfssamning við Þór en félögin hafa saman komið að sameinuðu liði Þórs/KA í kvennaboltanum síðustu áratugi. Þór/KA var myndað 1999 og varð Akureyrarliðið Íslandsmeistari 2012 og 2017. Liðið endaði í 8. sæti Bestu deildarinnar í ár eftir að hafa bjargað sæti sínu í deildinni með sigri í lokaumferðinni. Þór verður því með lið í Bestu deildinni en KA byrjar í 2. deild. Í tilkynningu KA kemur fram að framtíðarsýn félagsins sé sú að kvennafótbolti verði hornsteinn í starfi félagsins og að stúlkur í KA fái tækifæri til að leika undir merkjum félagsins alla leið upp í meistaraflokk.

Íþróttir
Tíst Lavrovs alvarlegra en tíst Heimis Más
RÚV·

Tíst Lavrovs alvarlegra en tíst Heimis Más

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sér ekki ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más Péturssonar á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann eggjaði Frakklandsforseta til að hóta kjarnorkuvopnaárás á Rússland. Hún hafi hins vegar mun meiri áhyggjur af því að „fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda“ hafi dreift færslu frá utanríkisráðherra Rússlands. Stefán Vagn Stefánsson, varaformað

Innlent
Erlendur maður gripinn við skjalafölsun við Hveragerði
Mannlíf·

Erlendur maður gripinn við skjalafölsun við Hveragerði

Erlendur maður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir umferðarlagabrot og skjalafals eftir að hafa ekið bifreið án gildra ökuréttinda og framvísað fölsuðu ökuskírteini. Dómur féll í Héraðsdómi Suðurlands 30. október. Málið á rætur að rekja til 8. nóvember 2025 þegar lögregla stöðvaði manninn þar sem hann ók bifreið um Suðurlandsveg við Hveragerði. Í ljós kom að maðurinn...

Samfélag
Vilja að Man Utd losi sig við Martínez
Fotbolti.net·

Vilja að Man Utd losi sig við Martínez

Lisandro Martínez varnarmaður Manchester United hefur verið mikið í umræðunni en hann fékk rautt spjald í tapinu gegn Chelsea. Þegar Carrick var spurður út í brottvísun Martínez eftir leik vildi hann ekki gagnrýna leikmanninn opinberlega.

Íþróttir
Héraðsdómur Reykjaness: Íris Helga neitar nær öllum ákæruliðum og segist sjálf hafa verið áreitt
Nútíminn·

Héraðsdómur Reykjaness: Íris Helga neitar nær öllum ákæruliðum og segist sjálf hafa verið áreitt

Íris Helga Jónatansdóttir neitaði í dag nær öllum ákæruliðum þegar aðalmeðferð í máli hennar hófst í Héraðsdómi Reykjaness. Hún segist saklaus og að hún hafi sjálf verið áreitt, samkvæmt RÚV. Hún er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum og öðrum tengdum þeim. Íris Helga kannaðist við fátt sem borið var undir hana í dómsal, […] Greinin Héraðsdómur Reykjaness: Íris Helga neitar

Samfélag
Kristrún hafnar því að fresta gjaldtöku á Gullna hringnum
Heimildin·

Kristrún hafnar því að fresta gjaldtöku á Gullna hringnum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki ætla að fresta áformum um sérstaka gjaldtöku við Gullfoss, Geysi og Þingvelli þrátt fyrir kröfur sunnlenskra sveitarfélaga um að fyrst verði metin samanlögð áhrif skattahækkana og nýrra gjalda á atvinnulíf í landshlutanum. „Við erum verkstjórn, við ætlum ekki að fresta þessu máli. Við látum verkin tala,“ sagði Kristrún í svari við fy

Stjórnmál
Áhyggjuefni að slökkviliðsmenn fá takmarkaða verklega þjálfun við raunverulegar aðstæður
RÚV·

Áhyggjuefni að slökkviliðsmenn fá takmarkaða verklega þjálfun við raunverulegar aðstæður

Brýn þörf er á uppbyggingu æfingarsvæða Brunamálaskólans fyrir slökkvilið hérlendis. Hvergi er að finna aðstöðu fyrir öll lögbundin verkefni þeirra á sama tíma og faglegar kröfur hafa aukist. Slökkviliðsmenn geta hvergi æft sig í öllum þeim verkefnum sem þeir þurfa að fást við og faglegar kröfur hafa aukist. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu HMS og Félags slökkviliðsmanna á Ísland

Innlent
„Skítaverkefni lokið“
mbl.is·

„Skítaverkefni lokið“

Skilaboðin „Skítaverkefni lokið“ koma fram í samskiptum á milli Írisar Helgu Jónatansdóttur og manns sem gert er að sök að hafa makað skít á heimili og bíl fyrrverandi kærasta hennar og sambýliskonu hans sem Íris er sökuð um að hafa hrellt.

Innlent
Krafði Þorgerði svara vegna kjarnorkuummæla Heimis Más
Mannlíf·

Krafði Þorgerði svara vegna kjarnorkuummæla Heimis Más

Harðar deilur urðu á Alþingi í dag vegna ummæla Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, um kjarnorkuvopn og stríðið í Úkraínu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði afstöðu íslenskra stjórnvalda til kjarnorkuvopna skýra og benti á að Heimir Már hefði beðist afsökunar. Málið kom til umræðu á Alþingi þegar Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflok

Stjórnmál
Netárásir á matvöruverslanir víða um Evrópu
RÚV·

Netárásir á matvöruverslanir víða um Evrópu

Netárás var gerð á tugi matvöruverslana og verslun IKEA í Belgíu í dag. Hitastig kæli- og frystiskápa var hækkað upp úr öllu valdi. Svipaðar árásir voru gerðar í Svíþjóð, Eistlandi og Lúxemborg. Í síðasta mánuði urðu þrjár franskar stórmarkaðskeðjur fyrir netárás með svipuðum hætti. Matvöruverslanir og IKEA urðu fyrir netárásum Stórmarkaðskeðjan Carrefour í Belgíu segir netárásina hafa truflað sta

Erlent
KA slítur samstarfinu við Þór
Fotbolti.net·

KA slítur samstarfinu við Þór

Eins og greint var frá fyrr í dag var samstarfssamningur milli Þórs og KA um kvennaliðið Þór/KA runninn út. KA gaf svo út tilkynningu rétt í þessu þess efnis að félagið hefði tekið þá ákvörðun að endurnýja ekki samninginn.

Íþróttir
Þurfa að sýna fram á öryggi áhafna
mbl.is·

Þurfa að sýna fram á öryggi áhafna

Ábyrgar fiskveiðar og Alda Öryggi hafa undirritað samstarfssamning sem sagður er auðvelda útgerðum að sýna fram á, með gögnum úr daglegum rekstri, að aðbúnaður, réttindi og öryggi áhafna standist kröfur alþjóðlega staðalsins FISH-standard for Crew.

Viðskipti
Flaug yfir fjöll og götur á heimasmíðuðu svifbretti
Mannlíf·

Flaug yfir fjöll og götur á heimasmíðuðu svifbretti

Kínverskur tæknáhugamaður hefur vakið mikla athygli eftir að hafa smíðað fljúgandi svifbretti og flogið á því yfir fjöll, götur og Jangtsefljót í Kína. Maðurinn heitir Song Xingyu, er 26 ára og kemur frá Enshi í Hubei héraði. Hann er þekktur undir nafninu Amazing Ayu á samfélagsmiðlum. Samkvæmt South China Morning Post tók það Song um tvo mánuði að þróa svifbrettið....

Tækni
Fylkir og Þróttur halda Football and Fun í Egilshöll
Fotbolti.net·

Fylkir og Þróttur halda Football and Fun í Egilshöll

Alþjóðlegt knattspyrnumót eldri flokka, Football & Fun, fer fram í 19. skipti laugardaginn 7. nóvember í Egilshöll í Reykjavík. Um 50 knattspyrnulið með yfir 400 leikmenn frá yfir 10 löndum eru nú þegar skráð til þátttöku í mótinu. Mótið er eins og undanfarin ár haldið af Fylki og Þrótti í Reykjavík með stuðningi Reykjavíkurborgar og KSÍ.

Íþróttir
Markaveisla í Bestu deildinni í ár – Sögulegu tímabili lokið
Fotbolti.net·

Markaveisla í Bestu deildinni í ár – Sögulegu tímabili lokið

Það er óhætt að segja að lokaumferð Bestu deildar karla hafi boðið upp á mikla markaveislu en hvorki meira né minna en 38 mörk voru skoruð í leikjunum sex, sem er met í einni umferð í sögu efstu deildar karla á Íslandi. Þar bar hæst ótrúlegur 8-3 sigur KR gegn Breiðabliki og 4-4 jafntefli ÍA og Keflavíkur en í raun var markafjöldinn á nýliðnu tímabili með ólíkindum. Alls voru skoruð 646 mörk í 162 leikjum Bestu deildarinnar í sumar, eða 3,99 mörk að meðaltali í leik. Það er langhæsta markahlutfallið frá því tólf liða deildin tók til starfa árið 2008 og töluvert meira en við höfum átt að venjast undanfarin ár. En hvernig stendur þetta tímabil í sögulegu samhengi og hvaða lið áttu stærstan þátt í þessari ótrúlegu markaskorun?

Íþróttir
Helgi Bjarnason: Pólitísk fréttastofa í gervi hlutleysis
Nútíminn·

Helgi Bjarnason: Pólitísk fréttastofa í gervi hlutleysis

Helgi Bjarnason skrifar: Ljóst má vera öllum þenkjandi mönnum að launaður erindreki stjórnarflokks á ekkert erindi í stjórn fjölmiðils sem á að vera pólitískt óháður. Þar er eðli máls samkvæmt augljós hagsmunaárekstur. Eða, ef við viljum tala hreina íslensku: Þetta er óboðlegt. Þrátt fyrir það situr Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, […] Greini

Stjórnmál
Var boðuð í hátt í 50 skýrslutökur vegna rannsóknar á umsáturseinelti
Heimildin·

Var boðuð í hátt í 50 skýrslutökur vegna rannsóknar á umsáturseinelti

Íris Helga Jónatansdóttir upplýsti í Héraðsdómi Reykjaness að hún hefði verið boðuð að minnsta kosti 40–50 sinnum í skýrslutökur hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum frá því málið hófst og að málið lægi þungt á henni. Íris Helga er ákærð fyrir umfangsmikið umsáturseinelti í garð níu einstaklinga, en málin snúa að mestu um þrjá menn. Íris Helga neitaði ítrekað fyrir aðild sína...

Samfélag
Tyrkir opna sendiráð á Íslandi
RÚV·

Tyrkir opna sendiráð á Íslandi

Tyrknesk stjórnvöld hafa í fyrsta sinn opnað sendiráð á Íslandi. Þau óskuðu þess í febrúar að fá að opna sendiráð hér. Það gerðist á símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakans Fidans, utanríkisráðherra Tyrklands. Nú er sendiráðið orðið að veruleika. Í dag gekk Mustafa Levent Bilgen á fund Höllu Tómasdóttur forseta og afhenti henni trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Tyrkla

Innlent
Mun West Ham reka stjórann?
Fotbolti.net·

Mun West Ham reka stjórann?

Framtíð Nuno Espírito Santo hjá West Ham er í óvissu eftir vonbrigði í byrjun tímabilsins. West Ham var talið langsigurstranglegasta liðið í Championship-deildinni en er í áttunda sæti eftir 3-1 tap gegn West Bromwich Albion um helgina.

Íþróttir
Rúður brotnar í nærri þrjátíu bílum á Nesinu
Mannlíf·
Sama málið · 2 miðlar

Rúður brotnar í nærri þrjátíu bílum á Nesinu

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist tilkynningar um skemmdarverk á nærri þrjátíu bifreiðum á Seltjarnarnesi. Skemmdarverkin voru unnin í nótt. Bifreiðarnar voru kyrrstæðar í bifreiðastæðum við Nesveg, Kirkjubraut og Austurströnd þegar skemmdarvargur, eða skemmdarvargar, létu til skarar skríða. Rúður voru brotnar í bifreiðunum. Lögreglan óskar eftir upplýsingum frá þeim sem kunna að hafa o

Innlent